Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Síða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Síða 10
152 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Ruth hló: „Góða Tit, það hefirðu nú verið svo oft og margsinnis.“ „Já, en nú er mér alvara,“ sagði Tit þungbúin. „Æ, hvernig á ég að geta hitt hann aftur á skrifstofunni eftir hálfan mánuð!“ „Hálfan mánuð?“ „Já, hann fer til Þrándheims á morgun og verður hálfan mánuð í burtu.“ Ruth varð léttara um andardráttinn. „Koma dagar, koma ráð. Þið hittist þá bara eins og ekkert hafi fyrir komið. „Það- hefir heldur ekkert komið fyrir,“ sagði Tit. „Bara það, að hann er ekki sá, sem ég hélt að hann væri — og ég er ekki sú sem hann hélt. En það er líka meira en nóg, því að------- ég segi þér það aftur, ég elskaði, virti og mat hann svo mikils. Og þessi þrjú orð hefi ég aldrei fyrr sett sam- an, er um nokkurn af mínum fyrri elsk- lingum hefir verið að ræða.“ Það var dimm og þungbúin alvara yfir Tit, er hún sagði þetta, og Ruth varð ljóst að einmitt núna hafði Tit hlotið sína fyrstu raunverulegu hjartasorg. „Ég skil,“ sagði Ruth stillilega og strauk höndinni létt yfir hárið á Tit. Tit brosti og varð léttari á svipinn. „Þakk, Ruthie!“ Svo stóð hún upp. „Og ef ég á virkilega að fá að sofa í rúminu þínu, þá held ég að ég fari að hátta!“ -----Ruth lá lengi vakandi og heyrði Tit bylta sér eirðarlaust í rúminu, en loksins lá hún kyrr, og Ruth hélt að hún væri sofnuð. „Guði sé lof,“ hugsaði hún. „Hún nær sér vonandi aftur eftir þetta líka.“ Og hún varð nærri því glöð og hamingjusöm á ný. Aðeins nærri því, en hún gat ekki leyft sér að vera himinlifandi glöð, þegar Tit var svona buguð og niðurdregin. Elska, virða og meta, sagði Tit. Aðeins orðin tóm í Tits munni, en einmitt þau orð, sem hún sjálf fann, að hún gæti notað til að lýsa tilfinningum sínum gagnvart Árna Lindgren. Elska, virða og meta, tautaði hún og sofnaði með bros á rjóðum vörum. Virða og meta — virða og meta! hugs- aði Tit, hún lá alveg glaðvakandi. Þvílíkt bull og vitleysa! Er til nokkur sá karl- maður, sem hægt er að virða og meta! Auðvitað ekki — — Eða er það bara ég, sem aldrei hitti á neinn slíkan. Er það sjálfri mér að kenna? Ó, Sverrir------ „Jæja, ertu þá vöknuð?“ „Vöknuð?“ Ruh teygði úr handleggjun- um upp yfir höfuðið og átti erfitt með að átta sig í svipinn. „Ert þú — —“ hérna, ætlaði hún að segja, en mundi svo allt í einu eftir öllu saman frá kvöldinu áður. Fyrst og fremst að hún hafði trúlofazh Andlit hennar ljómaði af gleði við til- hugsunina. „Já, ég er hérna,“ sagði Tit. „Og það er þó líklega ekki neitt til að gleðjast svo yfir.“ „Jú, það er það,“ sagði Ruth fljótt. „Það er verulega gaman að hafa þig hérna. Er það raunverulega kominn fótaferðartími?“ „Klukkan er orðin sjö. Viltu gera mér þann greiða að koma hingað og standa hérna við hliðina á mér sem snöggvast,“ sagði Tit. „Blessuð vertu, hvað á það nú að þýða! Og það svona snemma morguns,“ maldaði Ruth í móinn, en hún hoppaði samt upp úr legubekknum og stillti sér upp við hliðina á Tit, fyrir framan stóra spegil- inn. „Líttu á!“ sagði Tit. „Já.“ „Líttu á þig og líttu á mig. Þú ert frísk og rjóð og hrein og björt í augunum, ég er bleik og skrámótt niður eftir kinnun- um af tárum, sem hafa runnið niður yfir púðrið. Ég er svört umhverfis augun af

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.