Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Page 11

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Page 11
STARFANDI STÚLKUR 153 svertu, sem hefir nuddast út yfir. Augun í mér eru dauf og —“ „Þú hefir grátið,“ sagði Ruth, „og þú gleymdir að þvo þér í gærkvöld.“ Tit saumfór sjálfa sig nákvæmlega og miskunnarlaust. „Þetta andlit er afsökun fyrir Sverri Eker,“ sagði hún ákveðið. „Er það þinn baðdagur núna? Get ég ekki fengið að baða mig?“ „Já, gerðu svo vel,“ sagði Ruth og leit með athygli á Tit, sem fór út úr herberg- inu án þess að mæla orð. Ruth klæddi sig og bjó til morgunverð. Hún var rétt nýbúin að því, er Tit kom inn aftur. Spánný Tit, án þess að hafa notað minnstu vitund af rauða, svertu eða andlitsdufti. „Lízt þér betur á mig núna?“ „Skilyrðislaust.“ „Ó, freistandi morgunverður,“ sagði Tit og gleymdi alveg útliti sínu. „Þú ert elsku- leg og nærri því of góð fyrir þennan heim, ég vona að það komi einhvern tíma karl- maður, sem skilur það.“ Ruth fannst að það lægi ekki á að segja henni, að hann væri kominn, og auk þess leit hún þannig á málið, að Tit hlyti að vita það, ef hún aðeins hugsaði sig ofur- lítið um. Það var annars ekki útlit á því, að Tit bragðaðist neitt sérlega vel á hinum freistandi morgunverði. Hún sat og tuggði og tuggði og virtist aldrei ætla að verða búin að tyggja fyrsta brauðbitann. „Úff, nei, ég klára það ekki,“ sagði hún loksins viðnámslaus og faldi andlitið í höndum sér. „Hertu nú upp hugann, Tit. Þetta jafnar sig.“ Ruth var viss og ákveðin í málrómn- um. „Komdu og borðaðu miðdegisverð með mér, þá skal ég hugga þig, eins og ég bezt get.“ „í sama vetfangi mundi húri eftir því, að Árni hafði sagt að þau skyldu borða saman, hann skyldi hringja til hennar. „Það er að segja, ég — — Nei, það er sama. Við getum borðað saman.“ Tit var svo niðursokkin í sínar eigin hugsanir, að hún tók ekkert eftir, hvað Ruth var að segja; hún heyrði aðeins, að þær ættu að borða miðdegisverð saman. „Þú ert engill,“ sagði hún og hélt af stað til skrifstofunnar án þess svo mikið sem að líta í spegilinn framar. „Án þess að púðra sig,“ hugsaði Ruth. „Hún er sannarlega meira en lítið niður- beygð.“ Árni var sannast að segja ekki náðugur, er Ruth sagði honum, að hún gæti ekki farið með honum til miðdegisverðar. „Fyrsta trúlofunardaginn okkar, Ruth!“ „Já, en ekki þann síðasta, drengurinn minn,“ sagði Ruth, og fyrir þetta „dreng- urinn minn“ fékk hún fyrirgefningu. „Ég kem þá til þín klukkan sjö, og svo förum við heim og heilsum upp á pabba og mömmu.“ „Ertu þegar búinn að segja þeim það?“ „Nei, það skulum við gera í kvöld.“ „Hvað heldurðu að þau muni segja?“ „Næstum því ekki neitt af eintómri hrifningu,“ sagði Árni hlæjandi. „Ég er svo spennt — jæja, komdu klukkan sjö, nú verð ég að fara, það er að koma fólk í búðina.!“ „Sælar, fröken forstjóri!“ „Sælir, herra yfirdómslögmaður.“ ------Það fyrsta, sem Tit 'sagði, er þær höfðu setzt og hagrætt sér vel við innsta borðið í Teater-kafeen var: „Nú hefi ég gert eins og þú. Brennt all- ar brýr að baki mér, sagt upp stöðu minni, sáriðrast eftir því, og held samt að ég hafi athugað málið rækilega.“ „Tit!“ „Hrópaðu ekki svona. Þetta er hreinasta vitfirring, ég veit það vel, en ég gat ekkl annað gert. Ég er ábyggilega ofurlítið rugluð, og myndi verða ennþá ruglaðri, 20

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.