Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Page 16

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Page 16
158 NÝJAR KVÖLDVÖKUR ýmislegt, sem hún hefði sagt honum síð- asta kvöldið, er þau voru saman. Svo kom annað bréf, þar sem hann spurði, hvers vegna hún svaraði ekki, og að lokum enn eitt, þar sem hann sagðist sakna hennar, blátt áfram þrá hana. Gæti hún ekki gleymt síðasta kvöldinu? Þá skrifaði Tit blátt áfram „nei“ á spjald og lagði það í umslag. Síðan heyrði hún ekkert frekar frá honum. En hún mætti honum einu sinni á Karl- Johan.*) Hún var í gráa göngubúningnum sín- um, með lítinn hatt gráan og hanzka í sama lit, og handtösku og skó í samræmi við það.. Hún var mátulega púðruð og í góðu skapi. Hann stóð á horninu fyrir utan Grand Hotel og var snyrtimannlegur og fallegur, eins og hann var vanur. Hún varð hans fyrst vör og hafði því nægan tíma til að jafna sig, svo að þegar hann tók eftir henni og brá við, eins og hann ætlaði að stöðva hana, gekk hún fram hjá honum og bauð ósköp rólega góðan dag- inn og sneri sér ekki svo mikið sem einn millimetra, þótt hún fyndi greinilega undrandi augnaráð hans í bakið alla leið áð Eikartorgi. Sverri Eker fannst eins og að honum hefði verið gefið duglega utan undir. Þessa ungu, glæsilegu stúlku hafði hann, Sverrir Eker, móðgað blóðugt. Er hann ’ nú sá hana aftur, skildi hann hið stutta „nei“ hennar. Blindur hafði hann verið, sem ekki hafði eygt hina sönnu Tit á bak við það, sem hann þóttist þekkja. Hann hefði þó átt að geta skilið það. Hún, sem var vinkona Ruth Lange. Hann stóð grafkyrr og starði á eftir henni, unz hún hvarf fyrir sporvagnana á Eikartorgi. Þá sneri hann við og gekk hægt upp eftir *) Aðalgatan í Osló, þ. e. Karl-Jóhanns-gata. Þýð. Karl Johan — hægt, og ekki nærri því eins- hnarreistur og hann var vanur að vera. Aggí var vön að hafa skemmtileg spilakvöld öðru hvoru, oftast aðeins einn. bridge-flokk, en það kom þó fyrir að þeir voru tveir. Þá var einnig spilað á litla borðinu fyrir framan dívaninn, og varð að sitja nærri því kengboginn yfir því. Sá flokkurinn, sem sat við brigdeborðið, gat því séð á spilin hjá þeim við litla borðið, og sá sem sat hjá gat aldrei stillt sig um að grípa fram í spil hinna. Þessi spila- kvöld virtist Ruth vera einhver bezta og helzta skemmtunin. Hún var ekkert dug- leg að spila brigde, mundi nærri því aldr- ei hvaða spil voru komin út og sagði hátt á léleg spil til sárrar gremju fyrir and- spilanda, hver svo sem það var. „Ég hélt að ég hefði sérgáfu í þolin- mæði,“ sagði Rönning blaðamaður, „sér- staklega þegar um fallegar stúlkur er að ræða. En þér, fröken Lange, getið fengið engil til að rifna af bræði! Svona sem þér segið!“ „Ég skil ekkert í, að þið skulið vilja hafa mig með,“ sagði Ruth hlæjandi. „Þetta endurtekur sig í hvert sinn og ég er búin að segja ykkur það. Biðjið mig að korna og spjalla við ykkur, segi ég, en ekki til að spila brigde.“ Og svo var þá spjallað langt fram á kvöld, og Rönning fylgdi Ruth heim.. Hann var skemmtilegur og aðlaðandi, og Ruth geðjaðist betur að honum en flestum öðrum. Hefði Ósló aðeins ekki verið svona agnarlítil, þá hefði Ruth líklega smám- saman öðlazt sálarró og frið. En yrði henni gengið eitthvað út í borgina, þá hitti hún Árna Lindgren, hvaða leið sem hún fór. Hún var ekki af þeim, sem var að sí- felldu randi um borgina, og ekki Árni heldur, að því er hún bezt vissi. Hvers vegna voru nú örlögin að láta þau rekast

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.