Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Side 17

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Side 17
STARFAJSIDI STÚLKUR 159 á svona í sífellu? Það kom öðruhvoru fyr- ir, að hún sagði við sjálfa sig, að „nú er ég búin með það“; daginn eftir mætti hún Arna og fann að henni þótti vænna um hann en nokkru sinni áður. Atti hún að láta undan? Nei, nei og aftur nei! Honum gat ekki þótt nógu vænt um hana, úr því að hann gat sett henni þessi skilyrði, ann- að hvort — eða. Og Ruth beit saman tönnunum og reyndi að láta vera að hugsa um það, hve fallegur og myndarlegur hann hefði verið, þegar hún mætti honum síðast á Slotsgötunni. Hafði hann annars ekki megrazt ofurlítið, og var hann ekki bersýnilega órólegur, þegar hann heilsaði henni og gekk fram hjá? -----Ég held að ég verði að bregða mér til útlanda, hugsaði Lindgren yfirdómslög- maður, er hann einn daginn hafði gengið fram hjá Ruth á Drottningargötu. Þetta er að verða alveg óbærilegt. Aldrei hefði ég haldið að Ósló væri svona lítil. Hvert •sem ég fer, hitti ég á hana, ög hún er allt- af í huga mínum. Og inndælli og inndælli er hún orðin í hvert sinn, sem ég sé hana. En hvað stoðar það? Henni getur ekki þótt vænt um mig, úr því hún lætur búðar- rytjuna þá arna koma upp á milli okkar! Og Árni Lindgren hleypti í sig hörku og ráðstafaði málum sínum þannig, að hann gæti farið til Þýzkalands í næstu ■viku. Ruth stóð í fatageymslunni á Bristol*) -og lagaði á sér hárið frammi fyrir spegl- inum. Að baki henni stóð dökkhærð stúlka og reyndi að sjá í spegilinn til hliðar við hana. Ruth flutti sig lítið éitt til hliðar, og hin stúlkan roðnaði. „Æ, fyrirgefið!“ sagði hún. „Það var ekki meiningin að ryðjast að. Þér fyrst, fröken!“ *) Eitt hinna stærri hótela í ósló. Þýð. Ruth brosti: „Þakk, mér liggur nú ekki beinlínis á!“ „Ekki mér heldur,“ sagði hin og hló, en Ruth hugsaði með sér, að það gerði það nú víst samt, því að augu hennar blikuðu, og hún var rjóð í kinnum — hún hlakkaði augljóslega mjög til kvöldsins. Og það er sannarlega meira heldur en ég geri, hugs- aði Ruth, jafnvel þó að Rönning væri bæði laglegur og skemmtilegur. Hún leit sem snöggvast í spegilinn. Hár- ið lá slétt og vel burstað, á meðan það var, kjóllinn var nærri því nýr og fór henni ágætlega. Hún sá það sjálf. Ég er víst allright, hugsaði hún með sér eins og ekkert væri, kinnkaði kolli til hinnar og gekk upp. Fyrir utan Mára-höllina stóðu tveir smóking-klæddir herrar og biðu. Þeir litlu báðir við, er hún kom. Það var Lindgren og Rönning. Ó! Hjartað stanzaði í brjóst- inu á henni sem allra snöggvast, svo flæddi eldbylgjan yfir andlit hennar, háls og arma, í næsta vetfangi náfölnaði hún. Lindgren hneigði sig djúpt, en Rönning flýtti sér til hennar. „Ég held að ég hafi undið annan fótinn ofurlítið,“ sagði Ruth og tók undir hand- legg hans. „Nú er það liðið frá.“ „Já, ég skildi að það hlaut að vera eitt- hvað að,“ sagði Rönning. „Þér roðnuðuð og fölnuðuð allt í einu!“ Úff, hugsaði Ruth með sér, Árni sá það víst nógu vel, án þess að þér þyrftuð að benda honum á það. En hátt sagði hún: „Já, það er að minnsta kosti liðið frá núna. Þessháttar líður þó frá sem betur fer.“ „Gott kvöld,“ sagði hún stillilega, og Árni hneigði sig aftur, en þó að hann hefði átt líf sitt að leysa, hefði hann ekki getað stunið upp orði. Hve hún var inndæl, litla stúlkan hans — og hvernig í heiminum gat náunginn sá

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.