Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Side 18

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Side 18
160 NÝJAR KVÖLDVÖKUR arna leyft sér að horfa svona ástaraugum á hana? „Varð-ég lengi? Húff! Þú lítur út, eins og þú hafir séð draug!“ Litla, dökkhærða stúlkan hékk í hand- leggnum á honum. „Já, þú varst heila eilífð. Það er þess vegna, sem ég er svo fölur. En nú ertu komin, og þá er allt allright!“ Hann heyrði sjálfan sig segja þetta. Orð, falleg orð. Hann hafði aldrei ímynd- að sér að Ruth væri svona falleg í sam- kvæmisbúningi. Hún hafði ekki verið svona falleg áður. Hún var ef til vill í nýjum kjól, þó að kjóllinn ætti nú ekki að gera frá eða til á Ruth. Þarna sátu þau! Hann ætlaði að snúa baki við þeim svo að hann kæmist hjá að sjá náungann þann arna daðra við hana. Myndarlegur maður annars, þessi Rönning, og duglegur blaða- maður. Hann vissi ekki til að Ruth þekkti hann, og hún gerði það ef til vill ekki heldur — þá! Já, nú ætlaði hann að leggja af stáð hinn daginn, til allrar hamingju. „Varstu nokkuð að segja, Sissí?“ „Já, ég sagði að við hefðum fengið á- gætt borð. Ég ætla að sitja hérna, svo get- ur þú haft frjálsa útsýn til fallegu, ungu stúlkunnar fyrir aftan mig.“ „Þakk, ég kemst vel af með þig!“ „Tilbreyting geðið gleður, vinur minn! Og þar að auki situr fallegur herra fyrir aftan þig, og hann vil ég gjarnan horfa á.“ „Nei, þakka þér nú kærlega fyrir!“ Hún flýtti sér að setjast niður, og hann neyddist líka til þess. Nú varð hann í við- bót að sitja allt kvöldið og horfa á þau bæði. — Svona, þarna byrjaði náunginn á því að kaupa rósir handa henni — og Ruth brosti í þakkarskyni. Og hvílíkt bros! „Fæ ég líka nokkrar rósir, þakk!“ Hann valdi nokkrar inndælar rósir, dökkrauðar og gaf borðdömu sinni þær. „Þessar fara þér vel!“ „Ég hefði aldrei haldið að þú gætir ver- ið svona elskulegur, Árni.“ „Það sannar, að þó að þú hafir þekkt mig heila eilífð, þá hefirðu samt ekkl þekkt mig nógu vel.“ „Og rétt í því að ég verð þess vör, að þú. getur verið svona hrífandi, ætlar þú í. ferðalag!11 „Já, er það ekki sorglegt? Hefirðu orðið þess vís, þegar ég einusinni var trylltur af ást til þín, þá hefði ég ef til vill ekki verið á förum til útlanda.“ Hún hló. „Það er að segja, þegar þú varst fjórtán ára og ég tólf!“ „Já, það var inndæll aldur! Viltu dansa?“ Þau svifu inn í dans-iðuna á eftir Ruth og Rönning, sem fóru fram hjá rétt í þessu. Hann mætti augnaráði Ruth yfir öxlina á Rönning. Áðeins eitt stutt augna- blik, því að Ruth leit niður og leit síðan ekki upp aftur, meðan dansinn stóð yfir. Það var unaðslegur tangó, alveg dásam- legt lag, sem vakti sérkennilegan hugblæ hjá öllu dansfólkinu. Hann sá Ruth bíta á vörina, það var eins og hún berðist við grátinn. Hafði hún líka á tilfinningunni, að þetta hefði átt að vera þeirra dans? Að það var í faðmi hans, sem hún hefði átt að vagga sér á fögrum hljómbylgjum tangósins? Músíkin þagnaði allt í einu. Ruth leit upp og hló. „Stórfínn,“ sagði hún. Ósjálfrátt yppti hann öxlum. Honum hafði skjátlazt. Hún hafði ekkert á til- finningunni. Hún hafði sagt, að hann væri „stórfínn“ — einasta orðið, sem ekki var hægt að nota um þennan tangó. „Dásamlegur, ekki satt?“ Það var *hans eigin dama, sem spurði. „Einmitt,“ sagði hann, en honum hafði: ekki fundizt það, af því að hann hafði

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.