Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 20

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 20
162 NÝJAR KVÖLDVÖKUR sagði Tit. „Þú ert þreytt og slitin og veizt víst ekki lengur, hvað þú ert sjálf að segja. Aggí og ég skulum svo sem klára þetta, og séum við í vafa um eitthvað, þá landsíma ég bara til þín. Farðu nú bara heim og búðu þig og leggðu svo af stað með góðri samvizku og heilsaðu Evy frá mér. Með hvaða lest ferðu annars?“ „Fyrstu í fyrramálið.11 Þær gátu loksins talið hana til að fara, þegar klukkan var þrjú, og eftir að hafa kvatt þær ótal sinnum, komst hún loksins af stað. Tit stóð í dyrunum og horfði á eftir henni. „Hvað skyldi annars vera að? Það er eitthvað bogið.“ „Bogið? Hvers vegna ætti nokkuð að vera að? Hún er aðeins út úr þreytt og slitin,“ sagði Aggí. „En heyrðu, Títan, heldurðu ekki að þú getir verið einsömul í dag? Það er að segja það sem eftir er? Mig langar svo til að skreppa frá.“ „Skreppa frá? Gjarnan það, en hvers vegna?“ „Hægindastóllinn, Tit! Hægindastóli- inn!“ „Aggí, það eru álög á þér, þessi kaupa- fýsn!“ „Nei, Títan, ekki kaupafýsnin, heldur hægindastóllinn. Eg skal segja þér, að hann er inndæll — —“ „Farðu þá,“ sagði Tit. — — Þegar Friðrik Ofstad fór framhjá síðustu tóbaksbúðinni á heimleiðinni, flutti hann fimmtíu og fimm aura úr hægri vestisvasanum yfir í þann vinstri. Svona, hugsaði hann með sjálfum sér, aftur sparaðir fimmtíu og fimm aurar. Nú skal Aggí bráðum fá hægindastólinn sinn. En hve hún verður þá blíð, og hve glaður ég skal vera yfir fyrsta stólnum á heimili okkar, sem er borgaður út í hönd. Að hálfum mánuði liðnum skal hann vera kominn. í síðasta lagi að hálfum mánuði liðnum. En er Friðrik opnaði stofudyrnar sínar, þá var stóllinn þegar kominn. Hann stóð yfir við gluggann og virtist sérlega frekjulegur á svipinn og fullborgaður og feikna aðlaðandi. Friðrik nam staðar og starði á hann. Skepnan þín, hugsaði hann, hvað hefir þú hér að gera án míns sam- þykkis. Það var ég, sem átti að skáka þér þarna. Þú áttir ekkert með að standa þarna af sjálfsdáðum. Tveir handleggir vöfðust allt í einu um hálsinn á honum að aftan, hann sneri sér við og leit beint framan í gleðiljómandi andlitið á Aggí. „Hann er handa þér, Frissi! Er hann ekki flott? Setztu í hann og finndu!“ Hún þrýsti honum niður í stólinn og skákaði sér sjálfri í fangið á honum. „Er hann ekki inndæll?11 „Afborgun?" stundi Friðrik upp. „O-seisei-nei! Það er að segja, nærri því ekki,“ sagði Aggí geislandi glöð. „Ég borgaði helminginn, og hinn helminginn borga ég, þegar Ruth kemur heim aftur eftir þrjár vikur. Hún fer heim til sín á morgun og ég verð að vera til klukkan sex á hverjum degi á meðan. Við verðum að seinka miðdegisverðinum ofurlítið. En það gerir vonandi ekkert,' því að ég fæ ágætár aukatekjur og get borgað stólinnn — og allt mögulegt," bætti hún hreykin við. „Er hann ekki inndæll? Segðu það nú!“ „Jú, hann er verulega inndæll,11 það varð Friðrik að játa, „og þú ert elsku, duglega, litla konan mín.“ Honum sveið það samt dálítið, að það skyldi ekki vera hann, sem fékk að gera henni þessa gleði en hann vissi líka að Aggí var ein af þeim, sem heldur vildu gefa en þiggja, og hann andvarpaði hægt og beygði sig fyrir því, er eigi varí hjá komizt. Hann hugsaði um peningana, sem hann hafði sparað saman, og hvort hann ætti að bjóða Aggí þá til að borga „hinn

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.