Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Side 27

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Side 27
BOKMENNTIR 169 ar að gæðum, enda er við því að búast, slíkt ógrynni af rímuðu máli, sem flaut úr penna hans. En á köflum getur hann náð snilld og fegurð, sem erfitt er að yfirstíga og gerir oss undrandi enn þann dag í dag. Númarímur, sem ortar eru í fásinni á Grænlandi, náðu einna mestum vinsæld- um af rímum hans og halda þeim óskert- um ennþá, hjá öllum þeim, sem skyn- bragð bera á þessa hluti og gaman hafa af kveðskap. Eru enn eftir rúm hundrað ár margar hinar fegurstu vísur þessara rímna næstum því á hvers manns vör- um, svo sem eins og mansöngurinn og upphafið að tólftu rímu: „Dagsins runnu djásnin góð“ „Móð'ir jörð, hvar maður fæðist“ o. s. frv. Útgáfa þessi er gerð undir eftirliti próf. Sigurðar Nordals, sem sjálfur hefir ritað stuttan formála á enska tungu. En Svein- björn Jónsson magister hefir skrifað mjög fróðlegan og ítarlegan inngang um skáldskap og æfiferil Sigurðar Breið- fjörðs. Mun það vera skilmerkilegar gert en áður hefir verið ritað um þennan höf- und, þó að nokkuð sakni maður þess, að ljóðagáfu Sigurðar sé gerð full skil, né skáldskapur hans sæmdur að verðleikum. Sumar niðurstöður hans virðast mér og orka tvímælis. T. d. virðist mér hann tæplega færa fullnægjandi rök til að hrinda þeim orðrómi, sem Jón Borgfirð- ingur getur um í æfisögu Sigurðar, að hann hafi týnt seinna hluta rímnanna og orðið að kveða þær upp aftur, er hann kom frá Grænlandi. Það er í raun og veru eina skynsamlega skýringin á til- efnislausum nafnabreytingum og óná- kvæmri efnismeðferð síðara hlutans. Þó að hinsvegar megi sýna nokkrar vísur, sem allnákvæmlega þræða efnið, sannar það ekkert nema það, að höfundurinn hafi einmitit kunnað þessar vísur af hin- um upprunalegu rímum og mjög senni- legt, að einkum hafi hann munað man- söngvana. En auðvitað verður aldrei skorið úr þessu með neinni vissu. Þess verður einkum að geta um þessa útgáfu hversu afburða fögur hún er og vönduð — næstum því of íburðarmikil verður manni á að hugsa, með því að auðvitað hlýtur hún að verða nokkuð dýr þannig, enda munu ekki vera prent- uð nema rúm 200 eintök og verður þvi útgáfa þessi brátt sjaldgæf og hinn mesti kjörgripur. En það er hvorttveggja, að þetta er gert í sérstöku heiðursskyni við ágætan fræðimann, enda er slík höfuð- prýði að slíkum útgáfum í bókmenntum vorum, að það verður seint fullþakkað. Smekkvísi og fegurðartilfinning í bóka- útgáfu hefir aldrei komist á réttan kjöl hjá oss, síðan Odd Björnsson þraut að gefa úit Bókasafn alþýðu fyrir þriðjungi aldar síðan og til þess að hr. Snæbjörn Jónsson gaf út Ljóðmæli Gríms Thom- sens fyrir þrem árum. Síðan hefir allt það, er þessi forleggjari hefir gefið út, borið vott um fágætan listasmekk um prentun og allan frágang, svo að það sýnist vera farið að hafa áhrif á fleiri út- gefendur til meiri smekkvísi á þessu sviði. Sér maður na.umast fegurra letur en hjá ísafoldarprenitsmiðju h.f., sem annast hefir prentun á útgáfu þessari og ýmsu því, sem nú er fallegastur frágang- ur á hérlendis. Og þótt segja megi að andinn og orðanna hljóðan sé hin sama, hvernig sem gengið sé frá prentun og öðrum frágangi, þá vita það þó allir bókavinir, hversu ólíkt meiri nautn það er, að handleika og lesa glæsilegar bækur með fögru letri, eða hversu miklu meiri ánægja er að því að gefa slíkar bækur vinum sínum, en sniðljótar og smekk- lausar útgáfur. Smekkvísin þarf og heldur ekki alltaf að kosta mikla pen- 22

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.