Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 34

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 34
176 NÝJAR KVÖLDVÖKUR reiðfötunum og í jadegrænan silkikjól, sem var mjög nærskorinn og fleginn á öxl- um og sýndi greinilega fagran vöxt hennar og drifhvítan hálsinn. Hún leit sem allra snöggvast í örlítinn spegil og fór svo út úr tjaldinu og gekk út á stóru segldúks-ábreiðuna, sem var lögð framan við hvert tjald, og þar nam hún staðar gagntekin af hrifni yfir því, er fyrir augu hennar bar. Hún leit björtum augum út yfir tjaldbúðahverfið, sem lá umhverf- is vinjarnar, þar sem grannvaxin pálmatré stóðu í smálundum með stuttu millibili. Þaðan hvörfluðu svo augu hennar ú!t á sjálfa eyðimörkina, er breiddist út á alla vegu í mjúkum öldum — en í kvöldrökkr- inu virtist vera rennislétt -— alla leið út að fjarlægum hæðum og hryggjum. Alveg ósjálfrátt varpaði hún öndinni djúpt og gleðiþrungið, eins og þungri byrði væri af henni létt. Loksins, loksins var hún þá komin út 1 eyðimörkina! Og hún fann greinilega, að þessa stund hafði hún þráð alla æfi, heiítt og innilega. Hún fann ein- kennilega sterkt til þess, að hér myndi hún una sér vel. Það var alveg eins og kyrrðin mikla og eyðileikinn, sem hún hafði þráð svo mjög, hefðu einnig beðið eftir henni, og er hún nú loksins var þangað komin, byðu hana innilega vel- komna með lágróma skrjáf-hvísli sand- kornanna, og það var eins og hið síbreyti- lega bylgjumyndaða dular-yndi seiddi hana og kallaði til sín — bæði hana að koma og leggja leið sína lengra og lengra inn í hulda leyndardóma eyðimerkur- innar. „Skolli hefirðu verið lengi að þessu,“ kvað allt í einu við skammt frá henni. Það var hálf gremjuleg rödd bróður hennar, sem kallaði hana hranalega aftur til veruleikans. Hann gat aldrei þolað að bíða, og hún vissi vel af því, að hún var orðin á eftir áætlun. Hún leit hægt við og sá, hvar hann lá makindalega í ferða- stól og hafði lagt fæturna upp á annan stól. Hún brosti dauft og gekk að kvöld- borðinu, sem Stóð albúið og beið hennar. „Vertu nú ekki svona durgslegur Aubrey! Þú mátt djarft um tala, þú sexn hefir Stevens til að bera á þig raksáp- una og þvo þér um hendurnar, en eg verð að gera alltsaman sjálf!“ Sir Aubrey lét fæturna síga hægt ofan af stólnum, fleygði frá sér vindlinum og leit á hana með greinilegum vanþóknun- arsvip og þrýsti sjónglerinu óvenjulega faSt og harkalega inn í augnatóftina. —1 „Má eg spyrja, er það tilgangur þinn að snurfusa þig svona í kvöld til heiðurs við Mústafa Ali og úlfaldasveina hans?“ „Eg hefi alls ekki hugsað mér að bjóða háttvirtum Mústafa til borðs með mér, og ég er ekki vön að „snurfusa“ mig, eins og þú kemst svo fagurlega að orði, til þess að ganga í augun á einum né nein- um. Og haldir þú, að eg sé að skreyta mig, til þess að þér skuli lítast beltur á mig, kæri herra bróðir, þá skjátlast þér stórlega. Eg geri það aðeins til þess að sjálfri mér skuli líða betur. — Þú hefir líka sjálfur fataskifti! Hver er svo eig- inlega munurinn?“ „Það er svei mér mikill munur!“ svar- aði hann hvefsnislega. „Það er engin ástæða fyrir þig að gera sjálfa þig eftir- sóknarverðari, en þú ert áður!“ „Hvenær hefir þér annars farið að detta í hug, að eg gæti verið eftirsóknar- verð? Þú hlýtur áð hafa fengið sólstungu, Aubrey!“ svaraði hún í hæðnisróm, hrukk- aði ennið og spilaði með fingurgómunum á borðið. „Ekki að hæðast, góða mín! Þú veizt svo innilega vel, að þú ert lagleg — alltof lag- leg — alltof lagleg til þess að leggja út í þennan vitlausa leiðangur.“ „Viltu ekki gera svo vel að skýra svo- lítið nánar, við hvað þú átt, eiginlega,“ sagði hún rólega og horfði bláum augun-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.