Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 44

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 44
186 NÝJAR KVÖLDVÖKUR eg bók. Og nú er skáldið búið að ná full- komnu valdi yfir hæfileikum sínum og kveður sér nú hljóðs óhikað með kyngi- krafti sinnar ómenguðu skáldgáfu. Guðmundur Frímann er fjölhæft skáld. Og hann á óviðjafnanlega létt með að bregða upp í ljóðum sínum, skýrum myndum af mönnum og viðburðum, myndum, sem standa lifandi og ógleym- anlegar fyrir hugskotssjónum lesandans. Og stundum segir hann líka í örfáum hendingum heilar sögur, sögur, sem sum- ar eru daprar og örlagaþrungnar, en aðr- ar glettnislegar á yfirborðinu, en með kaldhæðni veruleikans að baki. En allt gerir skáldið þetta svo blátt áfram og hispurslaust, að unun er á að hlýða. Það er eins og að í einfaldleikanum nái skáld- ið oft og tíðum hámarki listarinnar í ljóð- um sínum. Guðmundur Frímann á ótal strengi í hörpu sinni og allir eru tónar þeirra hreinir og ófalskir. Stundum knýr hann strengina fullur barnslegri gleði yfir dásemdum náttúrunnar. Hann elskar vorið og einmitt þess vegna er líka sál hans alltaf opin og móttækileg fyrir áhrif þess. Hann segir líka á einum stað í kvæðinu „Þú komst sem ómur“ á bls. 38: »Af sólskinsþrá og söngvum er sál mín barmafulk. — Við hið seyðandi hjal vorsins verður sál hans snortin af dásemdum hins vak- andi lífs, og þá verða til yndisleg kvæði, eins og t. d. „Vorþrá“, „Á Jónsmessu- nótt“, „Vorljóð bóndans“, „Nýjar vísur um vorið“, „Vorvísur til Blöndu“. í kvæð- inu, „Nýjar vísur um vorið“, segir skáldið á einum stað: ,,Þó hvíldarlaust áranna fylking fari fram hjá, eg gjöf þína í hjartanu ber og undrunar augum eg stari á allt er þú sýnir mér. — Hún heillar mig enn sem á æsku dögum þín ástúð og vekur mér söngva þrá því ljóminn er sami á lögum og brögum lindanna — eins og þá«. —- Þetta er ástarjátning skáldsins til náttúr- unnar og hún er gefin í einlægni og af heilum hug. Og í kvæðinu „Á Jónsmessu- nótt“, þegar skáldið er að lýsa hrifningu sinni yfir fegurðinni, sem þá gagntekur það, kemst það svo að orði: „Þá grípur kvæðið dapran hug minn höndum og hendingarnar elta mig á röndum. Þá verð eg líkt og allur annar maður ölvaður og glaður«. Þetta er engin uppgerð heldur hjartan- legur fögnuður biðjandi, ljóselskrar sálar. Og skáldið endar þetta fallega kvæði á þessum hendingum, sem eru bæði sannar og einkennandi fyrir ljóðin í heild: »í óði mínum oft má þekkja sporin eftir blessuð vorin«. Fallegt er líka kvæðið „Vorvísur til Blöndu“ og háttur þess er bæði nýstár- legur og frumlegur. Niðurlag þess er svona: Blanda! Þú ert mynd alls, sem líður alls, sem bíður vorsins vaxtar — eftir dægur ísalöng. Orka þín er orka heilla þjóða þú ert drottning dagsins. Syng þinn vigasöng«. —■ Stundum verða tónarnir í hörpu skálds- ins mjúkir og klökkvi þrungnir hljóðlát- um trega, vekjandi ljúfar minningar löngu horfinna daga. Þá verða til ógleym- anlega falleg kvæði, t. d. „Um dáinn bónda“, „Inga“, „Kveðja til árdalsins“, „Drukkinn bóndi úr Skyttudal“ o. fl. o. fl. Ef til vill er kvæðið „Inga“ eitthvert hug- næmasta kvæði bókarinnar. Þar er rauna- saga snilldarlega sögð í fáum ljóðlínum. Og það er auðfundið að á bak við það kvæði slær hjarta skáldsins af viðkvæmni fyrir göfgi minninganna. Kvæðið byrjar svona:

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.