Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Side 3

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Side 3
Jónas Rafnar: Friðgeir H. Berg er fæddur 8. júní 1883 að Granastöð- um í Ljósavatnshreppi í Suður-Þing- eyjarsýslu. Foreldrar hans voru Halldór Bergfinnur Jónsson og Ingi- björg Hallgrímsdóttir. Þegar Frið- geir var þriggja ára, fluttust foreldr- ar hans með hann inn í Eyjafjörð, að Ósi í Hörgárdal, en fóru skömmu síðar að búa að Krossastöðum og síð- ar að Svíra í Hörgárdal. Þar dó Ingi- björg árið 1899, en árið eftir fluttust þeir feðgar til Ameríku. Var Frið- geir þá 17 ára gamall. Ekki hafði hann notið annarar uppfræðingar í æsku en lítils háttar farkennslu und- ir fermingu. Þegar þeir feðgar voru komnir vestur um haí, stunduðu þeir aðal- lega landbúnaðarstörf, en eftir það er Friðgeir varð fyrir alvarlegu slysi, — fótbrotnaði, — vann hann mest að smíðum. Hann kunni vel við sig í Ameríku, en þó atvikaðist það svo, að eftir dauða föður hans, 1915, hugði hann á heimferð og hvarf heim til íslands árið eftir. Skömmu síðar kvæntist hann Valgerði Guttormsdóttur frá Ósi í Hörgárdal, og bjuggu þau fyrstu árin á Akureyri, en síðan í þrjú ár á nýbýlinu Hofteigi í Möðruvallasókn. Árið 1923 fluttu þau aftur á Akureyri og hafa búið þar síðan. Þau eiga einn uppkominn son. Snemma hafði Friðgeir löngun til að leggja stund á bókmenntir og afla sér þekkingar, en þó gat ekki úr því orðið, að hann gengi í skóla vestan hafs. Hann lærði ensku mætavel og hefur kynnt sér enskar bókmenntir mörgum fremur, en þó rnun jafnan sú löngunin hafa verið sterk- Friðgeir H. Berg ari og ákveðnari, að fást við íslenzk fræði að fornu og nýju. Er hann svo vel að sér í þeim greinum, að fáir alþýðumenn munu standa honum á sporði að þekkingu og smekkvísi. Friðgeir H. Berg er víða þekktur fyrir hagmælsku sína. Að vísu voru fá kvæði hans prentuð á meðan hann dvaldi vestra, en síðan hann kom heim, hafa allmörg þeirra birzt í blöðum og tímaritum. Árið 1935 kom út eftir hann ljóðabók, sem hann nefndi „Stef“. Var henni vel tekið og hlaut góða dóma, enda eru í henni mörg prýðilega ort kvæði. Öðru hvoru hafa og birzt kvæði eftir hann í Degi, ís- 13

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.