Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 9

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 9
ÚLFS SAGA 103 ■að hætta sér langt frá eyjunni, þegar ýlfur og væl heyrðust í námunda. Þá varð heldur að treysta á fiskveið- •arnar, enda brugðust þær ekki. Veiði- •aðferðin, sem Örn hafði af tilviljun fund- ið og fyrr var um getið, reyndist vel. Og loks leið þessi langi vetur. Þegar brá til hlýinda á þeim tíma, sem við nú köllum marzmánuð, leituðu úlfarnir burtu á aðrar stöðvar, og hin fámenna fjölskylda fór að búa sig undir burtför sína. Oftar en einu sinni hafði Tóki og fé- lagar hans séð óvini sína njósna frá vatnsbakkanum, en þegar ísinn þiðnaði af vatninu, voru þeir óhultari fyrir árás- um. Svo voru veiðarnar eingöngu stund- aðar austan vatnsins, þar var árásarhætt- an minni, því það hlaut að taka óvinina marga daga, að fara landleiðina kringum vatnið. Dag nokkurn, áður en snjóinn hafði með öllu tekið upp, fóru þeir Úlfur og Örn á veiðar. Þeir skildu á vatnsbakkan- um, og Úlfur fór í norðurátt, en Örn hélt í suður. Úlfur sneri aftur síðdegis með rádýr á öxlinni. Þegar hann nálgaðist bakkann þar sem hann hafði skilið við bátinn, virtist honum hann heyra þaðan grun- samlegt þrusk. Hann lagði hljóðlega frá .sér veiðina og læddist nær. Af lítilli hæð gat hann séð hvar báturinn lá með kyrr- um kjörum á sínum stað. Úlfur lá kyrr stutta stund, og varð þá var við örlitla hreyfingu á kjarrinu skammt frá sér. Hann horfði fast á staðinn, og eftir stutta stund gat hann séð, að þar hnipruðu sig tveir menn, auðsjáanlega njósnarar. Úlf- "Ur skildi strax ráðagerðina, það átti að skjóta hann og Örn til dauðs aftan frá, Þegar þeir nálguðust bátinn. Nú reið á því að vara Örn við hætt- unni. Hljóðlega eins og skuggi skreið Úlfur í þá átt, sem Örn hafði farið. Hann fann fljótt spor hans og rakti slóðina. Á einum stað lá hún inn á milli hæða, og þar fann hann Örn. Hann lá á bakinu. Ör stóð í brjósti hans og á enninu hafði hann stórt sár eftir axarhögg. Það mátti sjá af traðkinu, að viðureignin hafði verið hörð, og að tveir menn höfðu drýgt ódæðisverkið. Það var engum vafa bundið, að þeir höfðu sótt alla leið hingað í þeim tilgangi að drepa Tóka og félaga hans. Þeir höfðu komizt á slóð Arnar og fylgt henni. Og þarna inni á milli hólanna höfðu þeir náð Erni og sært hann með örvar- skoti. En þrátt fyrir sárið hafði hann bú- izt til varnar, en orðið að hníga fyrir of- ureflinu. Örn var dauður. Líkið var orðið kalt, hér var ekkert meira að gera. Úlfur var gripinn af ofsalegri bræði. Hann skyldi hefna Arnar vinar síns. En hvernig? Hinir voru tveir, en hann sjálf- ur ekki nærri orðinn fullþroska. Skyndilega ruddi önnur hugsun sér til rúms. Þessir illvirkjar gætu útilokað hann að komast til eyjarinnar, til að að- vara föður sinn. Ef til vill væru aðrir af spellvirkjunum komnir til eyjarinnar, þar sem Tóki væri einn til varnar. Úlfur beið ekki boðanna. Umfram allt þurfti hann að koma þorpurunum að óvörum, og helzt gera annan þeirra óvíg- an, áður en þá grunaði nokkuð. Hann var fljótur að ákveða sig, hvernig hann skyldi haga sér. Hann skreið á fjór- um fótum og ásetti sér að komast á bak við óvinina. Hann fór með fram vatninu, og hugðist að koma þeim þar á óvart, enda náði hann betri aðstöðu með þeim hætti. Báturinn lá nefnilega í lítilli vík, og sunnan við víkina teygðist hólótt nestota fram í vatnið. Af þessari hæð gæti hann séð vel yfir

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.