Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 10
104 NÝJAR KVÖLDVÖKUR og komizt samt í sæmilegt skotfæri við óvini sína. Þegar hann nálgaðist hæðarbrúnina, hagræddi hann vel vopnum sínum fyrir framan sig. Svo valdi hann sér beztu ör- ina, lagði hana á streng, miðaði vandlega og skaut. Örin hitti beint í hrygginn á þeim manninum, er nær var, hann rak upp lágt hljóð og hneig út af. Hinn spratt samstundis á fætur, mjög undr- andi. Með leifturhraða hafði Úlfur skotið annarri ör, en vandaði sig ekki sem skyldi. Örin snart herðablað mannsins og gaf honum jafnframt til kynna, hvar and- stæðingur hans væri. Grenjandi af vonzku þreif hann hjart- arhornsspjótið sitt og skaut því að Úlfi, sem vatt sér undan á síðasta augnabliki. Fjandmaður Úlfs kom nú hlaupandi eins hart og hann gat móti honum, og nú sá Úlfur, í hvílíkum lífsháska hann var staddur, því að hann, unglingurinn gat varla búizt við að geta ráðið niðurlögum þessa grimma villimanns. Án umhugsunar stökk Úlfur þangað sem spjót mannsins lá, greip það og kast- aði því móti óvini sínum, sem var aðeins í fárra skrefa fjarlægð. Spjótið hitti hann í hægra axlarliðinn. Felldurinn hlífði nokkuð, svo sárið varð ekki mjög hættu- legt, en höggið lamaði handlegginn svo, að hann missti öxina. Hann greip hana þegar með vinstri hendinni, en sárið hafði auðsjáanlega dregið úr vígahug hans. Hann hikaði, og Úlfur var ekki seinn að nota sér það. Blóðið steig honum til höf- uðs af ákefðinni. Hér var um lífið að tefla. Hann réð sér ekki lengur, og rak upp dýrslegt öskur um leið og hann æddi móti fjandmanni sínum. Hornaxirnar mættust, og það hvein í þeim um leið. Öxi Úlfs stóðst árekstur- inn, en hin brotnaði, og öxi Úlfs nam staðar í síðu mannsins. Hann æpti hátt af sársauka og lagði þegar á flótta inn í skóginn, og Úlfur á eftir. En í því bili, þegar Úlfur reiddi öx- ina til að greiða honum banahöggið, rak hann annan fótinn í trjágrein og datt kylliflatur. Þá rann af honum mesti víga- móðurinn. Úlfur heyrði til mannsins, þar sem hann ruddist gegnum lágskóginn. En nú fann Úlfur fyrst að hann var dauðuppgefinn og treysti sér ekki til að elta fjandmann sinn lengur. Og hljóðið af fótataki flótta- mannsins dó brátt út í fjarska. Úlfur settist á fallinn trjástofn. Hann varð að hvíla sig ofurlítið, og safna kröft- um að nýju. Svo sneri hann aftur, og gekk þangað sem líkið af Erni lá. Hann tíndi upp vopn hans, lagði svo líkið á bak sér og bar það niður að lendingar- staðnum. Þegar hann kom þangað, var sá villi- maðurinn horfinn, sem fallið hafði fyrir örvarskoti Úlfs; af því mátti ráða, að sár hans hafði ekki verið banvænt, og að honum hafði þess vegna tekizt að flýja. Úlfur var þó alltof þreyttur til að grennslast eftir þessu nánar. Hann lagði lík Arnar í bátinn og ýtti frá landi. En £ því bili, sem hann settist sjálfur í bátinn,. kom ör frá bakkanum, og festist í brjóst- inu á líkinu, en Úlfur reri lífróður til eyjarinnar. Tóki stóð á bakkanum og tók á móti- Úlfi, þegar hann kom. Og Tóka grunaði strax, hvað gerzt hafði. í fáum orðum skýrði Úlfur honum frá atburðunum. Þá kom Sól til þeirra. Þögul beygði hún sig niður að líki maka síns, strauk hendinni blíðlega yfir föla ásjónuna og virti líkið fyrir sér nokkur augnablik, leit síðan á mennina, er stóðu þögulir hjá bátnum, sneri svo við og gekk lotin og döpur í bragði inn í kofa sinn og lokaði að sér. Um nóttina heyrðust til hennar ekka- blandnir kveinstafir, en um morguninn var hún eins og hún átti að sér að vera.-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.