Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 13

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 13
ÚLFS SAGA 107 gránaði gamanið, og Úlfur mátti þá full- komlega vara sig. Þannig var það einu sinni, snemma dags, að öndverðu hausti, að Úlfur rakst á úruxaslóð; hann greikkaði sporið og nálgaðist dýrið fljótlega. Það var þá á bersvæði og var á leið að lítilli tjörn. Úlfur gekk rólega út úr skóginum og skaut á úruxann, sem átti sér einskis ills von. Skotið kom milli rifjanna, en særði hann ekki banasári, eins og Úlfur gerði sér von um. Úruxinn — stór og gamall tarfur, þaut í ofsabræði móti Úlfi, sem ekki kom bog- anum við. Hann skauzt til hliðar, og ux- inn þaut eins og elding á eftir honum. Úlfur svipaðist um eftir tré, en í nánd voru aðeins lágir runnar. Hann hafði ekki önnur úrræði en að flýja eins og fætur toguðu, og treysta á skjótleik sinn. Og nú hófst ákafur eltingaleikur. Vonzkan brann úr blóðhlaupnum aug- um uxans, og á hlaupunum fékk Úlfur ekki ráðrúm til að skjóta einu einasta örvarskoti. Loksins komzt Úlfur að tré. Hann stökk sem kólfi væri skotið bak við það — og í sama bili hentist tarfurinn fram hjá því. Úlfur notaði tækifærið, og klifr- aði upp í tréð og slapp úr hættunni. Boli öskraði eins . og hann væri vitstola, og tætti jarðveginn upp með hornunum, svo að moldargusurnar gengu í allar áttir. Árangurslaust stangaði hann tréð, og nú gat Úlfur komið boganum við. Og örin þaut af strengnum. Úruxinn hætti ólátun- um snögglega og beygði höfuðið, eins og honum stæði á sama um allt í kring um sig. Svo áttaði hann sig aftur, sneri burt frá trénu og reikaði niður að tjörninni, lagði þegar út í hana og virtist ætla að synda að hinum bakkanum. En Úlfur flýtti sér niður úr trénu og hljóp allt hvað af tók eftir tjarnarbakk- anum, og hugðist að gera út af við tarf- inn, þegar hann kæmi að landi. Þegar úr- inn sá til ferða Úlfs, var eins og hann vissi ekki hvað hann ætti að gera og dapraðist honum sundið mjög. Svo rak hann upp hátt öskur og sökk. Örvarnar höfðu unnið á honum. En Úlfar missti með öllu af miðdegis- verðinum þann daginn. Tíu þúsund ár eru liðin síðan þessi at- burður gerðist. Þar sem tjömin var á dögum Úlfs er nú mýri, og þar fundu nokkrir menn, sem voru að skurðagreftri, heila beinagrind af úruxa. Það tókst að grafa haná upp, og þá fundust tveir örv- aroddar úr tinnu milli rifjanna. Beinagrindin stendur nú í heilu lagi á þjóðminjasafninu í Kaupmannahöfn, sem talandi tákn um lifnaðarháttu frum- byggjanna í hinum dönsku skógum, þegar Úlfur elti úruxann. VIII. FLJÓTIÐ MIKLA. Á dögum Úlfs var Eystrasaltið ekki til 1 þeirri mynd, sem það þekkist nú. En þá var þar geysistórt stöðuvatn, jafnvel stærra að flatarmáli en Eystrasalt og Helsingjabotn til samans. Vesturströnd þessa mikla vatns var þar í nánd, sem nú er Borgundarhólmur, þaðan féllu þrjár breiðar ár úr vatninu, sem runnu norður til sjávar. Nú nefnast hinir fornu árfarvegir Eyrarsund, Stórabelti og Litla- belti. Það var að vetri til, á þessum flakkár- um Úlfs, að við honum blasti stórt skóg- laust svæði og þar rann breitt og mikið fljót. • Úlfi fannst hann kannast við það frá bernskuárum sínum, þegar faðir hans með fjölskyldu sína, hafði fleytt sér eftir því á trjáfleka, en það var svo miklu 14*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.