Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Síða 16
110 NtJAR KVÖLDVÖKUR skaflinn, og honum tókst með aðgæzlu að hitta niður á kofaopið. Nú hafði hann lært af reynzlunni og gróf ekki með höndunum tómum, heldur með flötum trjábút, sem hann fann í skíðahlaðanum. Þegar því var lokið, hreinsaði hann snjó- inn út úr kofanum og kynnti eld. Reykur- inn steig léttan upp reykopið, og brátt varð hlýtt og vistlegt inni- Úlfur hvíldi sig á fletinu, og virti fyrir sér flöktandi logana frá eldinum, og honum fannst sér aldrei hafa liðið eins vel. Við hitann þiðnaði innan úr reykháfn- um og lak niður á eldstæðið, en það gerði ekkert til; eldurinn logaði og hitaði upp og það skipti mestu. Til þess að koma í veg fyrir að snjó- göngin fylltust af fönn, breiddi hann stóra hjartarhúð fyrir opið, og festi með hælum. Og svo leið að þeim tíma að Úlfur varð að afla sér nýs kjötforða; matarbirgðir voru aðeins eftir tii tveggja daga eða svo. Og einn morgun lagði hann af stað í dögun. Snjórinn var samanbarinn og harður kringum kofann og hélt vel, en þegar Úlfur kom inn í skóginn, var fönn- in lausari og versta ófærð. Honum gekk því seint að komast áfram, og ekkert villidýr bar honum fyrir augu. Öðru hvoru sá hann djúpar rákir í fönninni, það voru slóðir eftir einn og einn hjört, sem brotist hafði gegnum ófærðina. Vegna mjóu klaufanna höfðu þessi dýr sokkið djúpt í snjóinn, og það var auðséð að slóðirnar voru nokkurra daga gamlar. Síðari hluta dagsins sneri hann tóm- hentur heim á leið, og veik niður að fljót- inu í þeirri von að eitthvert happ bæri honum að hendi, en nú var þýðingarlaust að reyna gömlu aðferðina, sem Öm hafði fundið upp. ísinn á fljótinu var alltof þykkur til þess, ógagnsær og hrufóttur- En Úlfur tók eftir því, sér til mestu undr- unar, að ísinn virtist hreyfast örlítið, og hér og þar heyrðust brestir í honum. Úlf- ur varð eitthvað að reyna. Ef til vill mundi gamla aðferðin heppnast: að vaka ísinn, og veiða fiskinn í holunum. Með afarmikilli fyrirhöfn tókst honum loksins að höggva gat gegnum ísinn, og svo beið hann með spjótið á lofti við vökina, og þannig stóð hann óra lengi, en aldrei brá fiski fyrir í vökinni. Undir kvöldið veiddi hann loks lófastóra bröndu, og meira hafði hann ekki upp í þetta skiptið. Næsta dag hélt hann lengra út á fljótið,. í þeirri von að eitthvað kynni að aflast þar, en það fiskaðist ekki betur. Hann hélt samt áfram og urðu þá fyrir honum nokkrar vakir, og þar var krökkt af önd- um, sem flugu upp þegar hann nálgaðist,: en honum heppnaðist að skjóta eina þeirra til dauðs, og það var öll veiðin þann daginn. Og nú olli það Úlfi meiri áhyggjum en áður, hvernig hann ætti að afla sér vista, ef hann yrði aftur að dúsa í kofanum marga daga vegna illviðris, og óttinn við þetta knúði hann til margvíslegra heila- brota. En einn dagurinn leið eftir annan án þess honum tækist að veiða meira en aðeins til að seðja himgur sitt. Þá bættist það og við að úlfamir komu aftur og urðu nærgöngulir. Oft varð hann að hraða sér heimleiðis, þegar hann heyrði ógeðfellda ýlfrið í þeim, og einu sinni varð Úlfur að hafast við inni I kof- anum í meira en sólarhring af ótta við þá. En þó komst hann í hann krappastan í annað sinn, þegar hann komst ekki heim að skýlinu sínu fyrir þeim- Hann hafði verið á fuglaveiðum úti á fljótinu og heppnaðist eftir langa mæðu að skjóta tvær endur, og var á heimleið tmi kvöld- ið. Þá heyrði hann allt í einu væl í úlfi í fjarlægð, hann hraðaði för sinni, en

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.