Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Page 20

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Page 20
114 NÝJAR KVÖLDVÖKUR gerði betra gangfæri, svo að Úlfur gat ferðast víðar um en áður. X. LEYSINGIN. Það var snemma dags, að Úlfur fór á fuglaveiðar. Undanfarið höfðu gengið þíðviðri, snjórinn þiðnaði og vakir komu í ísinn á fljótinu, og þangað þyrptust sundfuglar í hópum. Það sást á öllu að vorið var að koma. Snjólausu blettirnir stækkuðu með hverj- um degi og loksins voru ekki eftir nema leifar af stærstu sköflunum. Allstaðar bullaði leysingavatnið fram og myndaði ótal gutiandi smálæki, er sameinuðust í stórar kvíslar, sem allar runnu að lokum í fljótið mikla, og þar flóði leysingavatn- ið eins og breið elfa ofan á ísinn. í skóg- inum miili trjánna vottaði fyrir nýgræð- ingnum og brumið á greinunum sprengdi af séð hýðið við vaxandi hlýju vorsins. En fljótið hafði enn ekki rutt sig. Grár og kuidalegur ísinn minnti þar enn á vetrar- harðindin, og enn hafði vorinu ekki tek- ist að vinna á nokkurra feta þykkum klakanum. En eitt og annað benti til þess, að hann mundi láta undan innan skamms. Meðal annars hafði Úlfur heyrt brak og bresti í ísnum síðustu dagana. Stund- um líktust þessi hljóð drunum svo að hvein í ísnum, en hann gerði sér ekki fuila grein fyrir, af hverju þau stöfuðu. Og fljótið hélt áfram að vaxa, ísinn hækkaði og sprakk, og þess varð ekki langt að bíða, að það sprengdi af sér ísinn. Úlfur var kominn á veiðar eins og venjulega, því að hann mátti engu færi sleppa og nú hafði hann haft heppnina með sér. Fyrri h'luta þessa dags, hafði hann veitt nokkrar endur. Hann var kominn afar- langt út á fljótið, og beið þar átekta við stóra vök. Þá bárust skyndilega úr suðurátt að eyrum hans hávæiar drunur. Hann leit upp, og í þá átt, sem hljóðið kom úr, og sá í miklum fjarska ísinn á fljótinu lyft- ast eins og háan vegg. Og drunurnar bár- ust með ofsahraða og urðu sífellt hávær- ari, og loks gat Úlfur séð, að það sem honum sýndist vera ís, var í raun og veru flóðbylgja, sem nálgaðist með miklum hraða. Hann reis á fætur, og tók á rás að fljótsbakkanum; hann hljóp sem fætur toguðu, því að nú sá hann að líf sitt var í veði. En hann var ekki kominn nema skammt á veg, þegar flóðaldan náði horíum, og hann kastaðist flatur og sogaðist þegar í kaf. Heljarstór jaki rakst á hann, og hann sárverkjaði í annan handlegginn og svo missti hann meðvitundina. Þegar hann raknaði við aftur, lá hann á jaka, sem barst hratt með straumnum. Flóðbylgjan hafði breiðst mikið út og lækkað. Hér og þar voru smáar og stórar jakarastir, sem bárust með straumnum, og sumstaðar mynduðust hrannir- Ekki vissi Úlfur hvernig hann hafði komist upp á jakann, en hann varð þess brátt áskynja, að hann hafði misst vopn sín. Hann skalf af kulda, svo að tennurnar glömruðu í munninum á honum. Hann reyndi að rísa á fætur, en fann þá að vinstri handleggurinn hékk máttvana nið- ur og ef hann reyndi að hreyfa hann, kenndi hann sárt til. Jakinn, sem Úlfur var á, var ekki stærri en sem svaraði fjórum til fimm föðmum á lengd og tveim til þremur á breidd, og meðan hann virti jakann fyrir sér, brotnaði partur af öðrum endanum. Hann mældi fjarlægðina til fljótsbakk- anna með augunum. Hann sá lítið móta fyrir vesturbakkanum, en að austurland-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.