Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Page 22

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Page 22
Richard E. Byrd Einn á heimskautajöklinum. (Niðurlag). Daginn eftir, föstudaginn 1. júní, leið mér hræðilega. Eg vaknaði eftir ógna- drauma næturinnar, til þess að komast að raun um að ég gat varla hreyft mig. Mér varð ljóst, að ég gæti dregið fram lífið í nokkra daga enn, með því að fara svo sparlega með krafta mína sem unnt var og hreyfa mig sem allra minnst og hæg- ast. En hita og mat þurfti ég samt að fá. Það voru 12 stundir liðnar, síðan eldurinn dó, og ég hafði einskis neytt í 36 stundir. Eg skreiddist úr svefnpokanum og klæddi mig- Mig snarsundlaði þegar ég kom nið- ur á gólfið, en sat stundarkorn þangað til ég hafði safnað þeim kröftum, að ég gat kveikt í eldstónni. Það logaði á henni rautt og reykmikið ljós, því að loftrásin var í ólagi. Eldurinn var óvinur minn, en án hans gat ég ekki lifað. Þorstinn kvaldi mig mest allra þrauta, mér fannst sem hundruð mílna fjarlægð væri út í ganginn, þangað sem ég sótti ís til bræðslu, samt réðist ég í að fara þang- að. En ég rann og datt, leiðin var ofvaxin kröftum mínum, ég sleikti ísinn, svo að ég brenndi á mér tunguna, síðan sópaði ég óhreinum snjó upp í dollu og áður en hann væri hálfbráðinn svolgraði ég allt saman í mig. Hendur mínar skulfu, svo að nokkuð helltist niður, en hinu, sem ég hafði kingt, kastaði ég nær samstundis upp. Að því búnu skreið ég aftur í hvílu- pokann. Eg hefi oft áður verið í lífsháska í loft- inu, en þarna var engu líkara en dauð- inn sæti yfir mér í skuggalegu herberg- inu til þess að taka sér þar fastan bústað, þegar ég væri farinn. Eg fylltist ótta. Samt óttaðist ég ekki svo mjög þjáningar og dauða, heldur ugði ég mest um þær afleiðingar, sem dauði minn hefði fyrir fjölskyldu mína. Stundum fannst mér ég hafa gert reginheimsku, með því að hætta mér út í þetta. Eg sá alla mína liðnu æfi líða fram hjá eins og á kvikmynd, og sá nú hversu rangt mat mitt hafði verið á verðmætum lífsins- Mér hafði hingað til sézt yfir það, að hinir einföldu hlutir heimalífsins eru þeir mikilsverðustu. Þeg- ar öllu er á botninn hvolft, er það einung- is tvennt, sem gildi hefir fyrir manninn, ást hans og skilningur á fjölskyldunni. Með mestu erfiðismunum skrifaði ég þessu næst bréf til konu minnar, móður, barna og félaganna í Litlu-Ameríku og festi þau við naglann, þar sem ljóskerið hékk. Annar júní leið á jafndapurlegan hátt og sá 1. Ég reyndi að tína að mér elds- neyti í smáskömmtum og tókst það. Næsti dagur var sunnudagur. Þá átti ég að senda skeyti til Litlu-Ameríku og ljúga að þeim um ástand mitt, enda þótt hver taug lík- ama míns mælti á móti því. Eg hefi oft verið spurður, hversvegna ég ekki skýrði félögum mínum frá því, sem gerzt hafði. Svar mitt var, að það var of hættulegt að gera tilraun mér til bjargar. Myrkrið, kuldinn, jökulauðnirnar með hinum ægi- legu sprungum voru allt ófrávíkjanlegar staðreyndir. Það var óhugsandi að leggja líf manna þannig í hættu. Hamingjan má vita, hvernig mér tókst að hreinsa blást- ursrörið og setja mótorinn í gang- Eftir það þurfti ég ekki annað en að þrýsta fingrinum á hnapp. Félagar mínir minnt- ust á ýmislegt viðvíkjandi vorstörfunum,

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.