Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 24

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 24
118 NÝJAR KVÖLDVÖKUR og að lokum dó sú von, er vaknað hafði hjá mér við samtalið. Eg slökkti ljósið, örmagna á sál og líkama. Júní leið og kuldinn fór vaxandi. íslag ..lagðist á gólf og veggi skýlis míns. Enda þótt logaði á eldstónni 16 stundir á sólar- hring, bráðnaði ísinn ekki. Eg lét niður- suðuvörur standa allan daginn við eld- inn, en samt þiðnuðu þær ekki meira en svo, að ég varð að brjóta þær upp með hamri og meitli. Eg var allur fleiðraður um fingurna af því að fara með frosinn málm, og hversu mikið, sem ég borðaði og hve mikið sem ég klæddist, gat mér samt aldrei hlýnað. Þegar út kom, var engu líkara en vind- urinn skæfi framan úr mér skinnið, ég gat með engu móti hlíft mér fyrir hon- um. Tærnar á mér kólnuðu fyrst og urðu tilfinningarlausar. Eg reyndi að teygja þær og hreyfa, til þess að koma af stað blóðrásinni, en þá varð ég þess var, að nefið á mér tók að frjósa, og síðan kom röðin að höndunum. Háls, öklar og úln- liðir áttu í sífelldu stríði, ýmist við hita eða kulda. Stöðugt heyrðust frostdynkir í jöklinum, eins og ógna þrumur eða jarð- skjálftar. Það var greinilegt, að ótal jök- ulsprungur mundu opnast í nágrenninu. Hinn 5. júlí varð Byrd enn fyrir nýju óhappi með mótorinn. Það var með mestu naumindum, að hann gat þá sent skeyti til Litlu-Ameríku, og látið vita um bil- unina, og að þar á eftir yrðu skeytasend- ingar hans óglöggar. Félagar hans svör- uðu honum að reynt yrði að ná jökul- stöðinni undir lok mánaðarins. Enn einu sinni reyndi Byrd að mótmæla þeirri fyr- irætlan, þar sem ferðalagið hlyti að vera alltof hættulegt. En í miðju kafi varð hann að hætta samtalinu algerlega magn- þrota. Það var þriðja áfallið, sem hann fékk með fylginautum þess: svefnleysi og kvölum. Andlitið, sem ég sá í speglinum þessa dagana, segir Byrd, var af gömlum, las- burða manni, með sogna kinnfiska og blóðhlaupin augu. Rifin stóðu út úi; síð- unum á mér og skinnið hékk utan á handleggjapípunum. Eg vóg 180 pund, þegar ég settist að á jökulstöðinni, en ég efast um, að ég hafi vegið meira en 125 pund í júlímánuði. 15. júlí fékk ég skeyti um, að reynsluferðir Poulters hefðu gengið vel, og hann mundi leggja af stað fyrsta góðviðrisdag, sem kæmi eftir þann 20. Eg svaraði: Gætið þess vandlega, að tapa ekki slóðinni eða lenda í eldsneytis- skorti, varist undir nokkrum kringum- stæðum að hætta mannslífum“. Þá svar- aði Murphy: „Við gerum þér aðvart á fimmtudaginn eins og vant er og síðan tvisvar á dag“. Eg reyndi að svara ein- hverju, en kraftar mínir voru þá þrotnir. í dagbókinni í Litlu-Ameríku, standa eft- irfarandi orð: „Byrd sagði þá ágætt, hlusta 10 mínútur á hverjum degL mhind volkng k’.... Dyer bað hann að endurtaka þetta, en ekkert svar“. Jafnvel nú, eftir 4 ár, virðist öll sagan ótrúleg. Eg laug að félögum mínum og þeir að mér. En sá var munurinn, að þeir grunuðu mig um græzku og höfðu fundið upp aðferð til að leika á mig. Svo er að sjá, sem Charley Murphy hafi tekið að gruna seinnipart júnímánaðar, að ekki væri allt með felldu hjá mér. Grunur hans styrktist við óregluna á skeytasend- ingunum, bæði rangritun orða og hin löngu orðabil. En bæði hann og Poulter gættu þess vandlega, að ég fengi ekki hinn minnsta grun um, að þeir væru beinlínis að að gera út hjálparleiðangur mín vegna. Murphy tilkynnti mér 18. júlí, að Poulter væri lagður af stað við fjórða mann. Enginn dæmdur maður í fangels- inu, sem þó lifir í voninni um náðun á síð- ustu stundu, getur hafa þjáðst meira en ég, því að auk mín sjálfs, hafði ég nú líf

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.