Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Blaðsíða 33

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Blaðsíða 33
ARABAHÖFÐIN GINN 127 hinar hverfulu sælustundir, er hún hafði notið. — Árum saman myndu nú þessar endurminningar vera allt það, sem hún hefði að lifa fyrir. Jafnvel í hjarta sínu ásakaði hún hann ekki fyrir neitt — í sorg hennar var enginn biturleiki né gremja. Hún hafði ætíð vitað, að ein- hverntíma hlyti að koma að þessu, þótt hún hefði alltaf barizt á móti þeim hugs- unum og reynt að bola þeim á brott. Hann hafði aldrei sagt neitt það, er gæti vakið hjá henni gagnstæðar hugsanir, aldrei reynt að telja henni trú um neitt. Á milli þeirra voru engin föst tengsli. Hefði að- eins verið lítið barn í vændum! Þótt hún væri alein, þaut blóðið upp í kinnar henni, og hún faldi andlitið í koddunum og dró djúpt, titrandi andvarp. Lítið barn, sem þau hefðu átt bæði! Barn, sem líktist honum og myndi vaxa upp og þroskast og verða stórt og fallegt og djarft og hug- prútt eins og faðir þess! Ó, þá hefði hann líka hlotið að elska hana! En nú hafði hún enga minnstu von um þessháttar miskunn af hálfu guðanna. Óefað myndi endur- minningin um hin sorglegu örlög móður hans hafa gert honum hlýrra í huga til barnsmóður sinnar. Hún var veik af þrá eftir huggunarríkum faðmlögum hans, og lá nú titrandi á legubekknum, og allt í einu spruttu tárin úr augum hennar og hrundu niður fölar kinnar hennar. Margra vikna innibyrgðar og niðurbæld- ar kvalir létu sig ekki lengur bæla og slitu nú af sér öll bönd. Nú gat enginn heyrt örvæntingarþrunginn grát hennar, sem hrissti hana og skók frá hvirfli til ilja. Loksins, loksins gat hún svalað sorg sinni! Henni var ekki grátgjarnt, og hún hafði ekki grátið síðan fyrsta kvöldið, er hún í angist sinni hafði skriðið að fótum hans og beðið sér miskunnar og vægðar. Hún hafði ekki grátið þær ógurlegu stundir, er hún var í tjaldi Ibrahims Omair, ekki dagana, sem Raoul hafði bar- ist við að bjarga lífi hans; en í kvöld lét hún tárin streyma viðstöðulaust, tárin, sem hún hafði fyrirlitið alla sína ævi. Hún lá endilöng á stóra rúminu og sterk- ar og andstæðar tilfinningar brutust um í brjósti hennar: ósvöruð ást, ótti og óvissa, og taugar hennar voru þrautreyndar út í yztu æsar. Hún lét því algerlega yfirbug- ast af sorg sinni. Hún faldi andlit sitt í koddunum, greip dauðahaldi í silkiábreið- una og grét og grét, unz táralindir henn- ar voru þurrar, og gráthiksti hennar hvarf í næturkyrrðina. Hún lá dauð- þreytt og máttvana og hreyfði hvorki legg né lið. Loftið í tjaldinu varð æ heitara og óbærilegra. Henni fannst hún varla geta dregið andann og settist því allt í einu upp í rúminu, strauk þungar hárbylgj- urnar frá enninu og faldi andlitið í hönd- um sér. Sandfluga tók að suða einhvers- staðar skammt burtu og ætlaði aldrei að hætta, og allt í einu rifjaðist upp fyrir Díönu allt það, sem hún hafði snúið baki við og yfirgefið, — gamla ættarsetrið á Englandi, alla ætt sína og ættarheiður, sem forfeður hennar höfðu metið svo mikils og haldið hátt, hærra öllu öðru í heimi, og það hafði einnig hinn lati og síngjarni Aubrey gert. En hér sat hún sjálf, hin stolta Díana Mayo, sem bar ætt- areinkennin á sínum grönnu og fagur- sköpuðu höndum, er vitnuðu um heila röð stoltra manna og dyggðugra kvenna — hér sat hún vanþakklát í hjarta sínu við örlögin, er í allri hennar niðurlægingu höfðu þó hlíft henni við enn stærri skömm. Það var, sem allt annað bliknaði fyrir ást hennar. Hann var líf hennar og heimur! Jafnvel heiður hennar og ættar- stolt hafði brunnið upp til agna í glóandi ástarfuna hennar, hann hafði einnig svift hana þessu, og hún gerði sig ánægða með að liggja fyrir fótum hans. Það fór hroll- ur um hana, og hún litaðist um í tjald-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.