Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Page 40

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Page 40
134 NÝJAR KVÖLDVÖKUR skemmtunar, og nú fleygir þú mér frá þér — af sömu ástæðum! Hve oft á ári ertu vanur að -senda Gaston til Frakk- lands með ástmeyjar þínar, sem þú hefir orðið leiður á og viljað losast við? Rödd hennar brast, og hún rak upp tryllings- legan hlátur. Áður hana varði, hafði hann snúið henni að sér, tekið hana í faðm sinn og þrýst henni að sér með heljarafli. Augu hans blikuðu eins og eldstjörnur í myrkr- inu, og hann virtist gleyma því, hve sterkur hann var. „Guð minn góður! Heldurðu að mér sé það svo auðvelt að láta þig fara, úr því þú svona miskunnar- laust hæðist að mér? Skilurðu þá ekki, að ég hefi þjáðst og liðið kva'lir, og þjáist einn- ig nú? Skilurðu ekki, að það er eins og að slíta úr mér hjartað að senda þig burtu á þennan hátt? Án þín verður líf mitt hreinasta Víti! Skilurðu ekki að mér er það ægilega ljóst, hvílíkur bölvaður asni ég hefi Verið? Eg elskaði þig ekki, þegar ég tók þig — ég girntist þig aðeins til að svala ástríðu minni, og það gladdi mig, að þú varst brezk, svo að ég gæti kvalið þig, eins og Breti einn kvaldi móður mína! Þannig hataði ég allan kynstofn þinn! Á þann hátt hefi ég verið haldinn brjálsemi alla mína ævi, að ég held — þangað til nú! Eg hélt, að ég kærði mig ekkert um þig, þangað til nóttina, er Ibrahim Ómair hafði tekið þig til fanga, þá varð mér ljóst, að yrði nokkuð að þér, var líf mitt eigi þess vert framar að lifa því, og að ég ætlaði mér aðeins að bíða, unz ég hefði drepið Ibrahim Ómair og fyrirfara því næst sjálfum mér“. Hún fann til sársauka undan faðmtaki hans, en hún gleymdi samt því í fögnuði sínum yfir því að vera í faðmi hans, og hún hjúfraði sig að honum án þess að mæla orð af munni, og hjarta hennar barðist ákaft. Hann horfði djúpt í augu henni, og Ijómi augna hans — sá ljómi og eldur, sem hún hafði þráð að geta kveikt í þeim — hreif hana með sælum titringi. Brúnt andlit hans laut alveg nið- ur að andliti hennar, svo að lá við, að var- ir þeirra snertust, er hann allt í einu hrökk við og rétti sig upp aftur. „Nei, ég má ekki kyssa þig!“ sagði hann í hásum róm og ýtti henni blíðlega frá sér. „Ef ég gerði það, held ég ekki, að ég hefði þrek til að láta þig fara. Það var ekki ætlun mín að snerta þig framar“. Og hann sneri sér frá henni þreytulegur í svip og látbragði. Hún horfði á hann kvíðin og angistar- full. „Ég kæri mig ekkert um að fara“, hvíslaði hún lágt. Hann hafði staðnæmst við skrifborðið og stóð þar ofurlitla stund og rjálaði við marghleypuna, sem hann hafði hlaðið fyrr um kvöldið. Svo lagði hann hana aftur á borðið, áður en hann svaraði. „Þú skilur það ekki. Það verður ekki hjá því komist“, sagði hann dauflega. „Ef þú elskaðir mig raunverulega, þá myndirðu ekki senda mig burt!“ sagðí hún grátandi. „Ef ég elskaði þig?“ endurtók hann og hló harðneskjulega. „Ef ég elskaði þig! Það er einmitt sökum þess, að ég er fær um að gera þetta! Ef ég elskaði þig ekkí eins heitt, myndi ég láta þig vera og — láta allt velta á súðum!“ Hún rétti upp hendurnar, biðjandi, í áttina til hans. „Æ, ég vil þó aðeins vera hjá þér, Ahmed! Ég elska þig!“ stundi hún upp örvita af sorg — því hún þekkti ósveigjanlegan vilja hans og sá nú lífs- hamingju sína fjarlægjast og hverfa — algerlega óviðráðanlega. Hann hreyfði sig ekki, leit heldur ekki á hana, hann hnyklaði aðeins brúnirnar ofurlítið. „Þú veizt ekki, hvað þú ert að segja“, sagði hann í blælausum málróm. „Ef þú giftist mér, yrðir þú að lifa lífi þínu hér í eyðimörkinni. Ég get ekki yf-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.