Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Side 42

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Side 42
136 NÝJAR KVÖLDVÖKUR drættirnir um munn hans voru nú harðir og miskunnarlausir, eins og hún kannað- ist svo vel við. — Hún rak upp hljóð og fleygði sér í fang hans, faldi andlit sitt við brjóst hans og vafði handleggjunum um háls honum. „Ahmed! Ahmed! Eg get ekki lifað án þín! Eg elska þig, og ég vil vera hjá þér — aðeins hjá þér! Eg kvíði ekkert einver- unni hérna á eyðimörkinni — það er ein- veran úti í heiminum — utan við faðm þinn — sem ég óttast! Ég óttast ekkert, hvað þú ert, eða hvað þú hefir verið. Ég óttast ekkert, hvernig þú 1 framtíðinni kannt að reynast mér. Eg hefi aldrei lif- að né vitað, hvað lífið var, fyrr en þú kenndir mér það hérna í eyðimörkinni. Eg get ekki horfið aftur til minnar gömlu tilveru, Ahmed! Sýnd,u mér meðaumkun? Sendu mig ekki burtu frá þér! Eg veit, að þú elskar mig — ég veit það! En ein- mitt sökum þess að ég veit það, fyrirverð ég mig ekkert fyrir að biðja þig um að vera miskunnsamur. Eg á hvorki blygðun né stærilæti til framar, Ahmed! Talaðu við mig! Ég þoli ekki lengur, að þú segir ekkprt! — Ó, þú ert grimmur, grimmur!“ Það komu sársaukadrættir í andlit hans, en svipur hans varð enn hörkulegri en áður. Hann tók fast um hendur hennar og losaði þær miskunnarlaust. „Eg hefi alltaf verið það“, sagði hann biturt. „En ég vil heldur, að þú teljir mig grimman og hinn mesta þorpara, heldur en að sá dagur renni upp yfir þér, að þú formælir þeirri stundu, er þú hittir mig í fyrsta sinn. Eg held enn ófrávíkjanlega fast við þá skoðun mína, að þú hafir langtum fleiri og meiri skilyrði til að verða ham- ingjusöm fjarri mér en hjá mér — og ég legg fús allt í sölurnar fyrir hamingju þína“. Hann sleppti höndum hennar, sneri sér snöggt frá henni, gekk aftur út í tjald- dyrnar og staðnæmdist þar og starði út í myrkrið. „Það er orðið mjög framorðiðT og við verðum að leggja af stað snemma í fyrramálið. Farðu nú inn og háttaðu“, sagði hann blíðlega, en það var samt skip- un í rödd hans þrátt fyrir vingjarnlegan hljómblæinn. Hún hörfaði skjálfandi aftur á bak. Hún var náföl og starði á hann stórum bænar- augum, gagntekin af sorg og örvæntingu. Hún þekkti harm svo vel, að henni var full ljóst, að þetta voru leikslokin. Tárin blinduðu augu hennar, og hún ráfaði yfir að litla skrifborðinu, reikul í spori. Hún sneri baki að því og greip í borðbrúnina sér til stuðnings og rak þá fingurna í marghleypuna, sem hann hafði lagt frá sér. Snertingin á köldu stálinu fór eins og titringur gegnum hana. Hún stóð tein- bein og starði stórum, skelkuðum augum á hreyfingarlausan manninn í tjalddyrun- um, greip annarri hendi fast utan um vopnið, en með hinni handfylli sína í brjóstið á silkiblúsu sinni. Eins og í hita- órum sá hún fyrir sér allt það, sem nú myndi verða. Nú voru aðeins fáeinar klukkustundir til aftureldingar, er hún varð að fara héðan fyrir fullt og allt og yfirgefa þetta tjald, sem var orðið henni kært og samgróið, en það hafði hið gamla óðalssetur hennar heima á Englandi aldrei getað orðið. Hún hugsaði um hina löngu reið norður á bóginn; er nú stæði fyrir höndum, þessa síðustu sárkveljandi ferð við hlið hans, næturnar á áfangastöð- unum, er hún myndi verða að liggja ein- sömul í litla ferðatjaldinu, og loksins síð- ustu kveðjurnar á litlu járnbrautarstöð- inni, er hún myndi sjá hann snúa við og halda heimleiðis í fararbroddi manna sinna — burt — algerlega út úr tilveru hennar — og hún myndi standa einmana eftir og stara sig blinda gegnum sand og ryk eyðimerkurinnar til að sjá hann i síðasta sinn á fjöruga gæðingnum svarta. Hún beit hvítum tönnunum í titrandi vör

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.