Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 46

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Qupperneq 46
140 NÝJAR KYÖLDVÖKUR þar eru bæði sögur í hinum forna stíl fylltar kyngiþrótti, má af þeim nefna sögurnar um skotturnar í Ábæ og Hleið- argarði, Mussulegg, írafellsmóra og marg- ar fleiri, en í þessum flokki eru einnig sagnir, sem eru með miklu mildari og skapfellilegri blæ og í stíl við hin dular- fullu fyrirbrigði nútímans. Galdrasögurn- ar eru einnig fjölbreyttar, skýra þær bæði frá reglulegum galdrabrögðum og þó öllu meira áhrínsorðum og ákvæðaskáldskap, má þar geta sagnanna af Látra-Björgu og Guðmundi Bergþórssyni. Ófreskisögur eru margar allmerkilegar. Fagrar huldufólks- sögur og skáldlegar eru sögurnar af Fiðlu- Bhrni og Ein sit ég úti grátin. Annars liggur gildi þessa bindis meira í því hversu sögurnar eru jafnar að gæðum en hinu að hér sé um verulegar afburðasagnir að ræða. Ekki fæ ég að því gert, að skemmtilegri hefði mér þótt sú aðferð við útgáfuna, sem kunn er úr safni J. Á., að láta hvern .flokk vera út af fyrir sig, þannig að hvert bindi tæki við af öðru en væru ekki heild hvert í sínu lagi.*) Að vísu verður hvert bindi þegar það kemur manni í hendur fjölbreyttara og læsilegra með þeirri að- ferð, sem tekin hefir verið, en að verkinu fullloknu verður það sundurleitara en ef hinni aðferðinni hefði verið fylgt. Bind- inu fylgja vönduð registur, sem auðvelda alla notkun þess. Það er víst, að þetta bindi mun herða á óskum manna um að fá sem fyrst út það sem enn er eftir af þjóðsögum Ólafs, hvort sem það reynast eitt eða fleiri bindi, og þá væri einnig æskilegt að hægt væri að gefa út hið mikla galdrarit hans, sem til er í *) Orsökin til þess að hvL'rt bindi var gefið út sem heild hvert í sínu lagi var sú, að ekki þótti víst að sala yrði svo mikil, að víst væri 1 öll hin áætluðu bindi kæmu út. Ritstj. handriti, eða a. m. k. útdrátt úr því*) Þá fyrst eru full skil gerð verkum hins eljusama fræðimanns, og á útgefandi fyllstu þakkir skildar fyrir starf sitt. Friðgeir H. Berg: í Ijósaskiptum. Útgefandi Þorsteinn M. Jónsson. Prentverk Odds Björnssonar. Ak- ureyri 1939. í kveri þessu skýrir höf. frá ýmsum furðulegum hlutum, sem fyrir hann hafa borið, eru sagnirnar um þau alls 14. Svo má heita að þarna komi fram mikill hluti þeirra dulskynjana, sem annars eru kunn- ar úr reynslu alþýðu manna, það eru sýn- ir, fjarskygni, dulheyrn og draumar. I nokkrum formálsorðum lýsir höf. stutt- lega þeim skoðunum, sem hamn ólst upp við og segir hann þar, að hann hafi fetað dyggilega í spor tímanna, „og trúði því fastlega að það, sem nú eru nefnd dular- full fyrirbrigði væri tóm ímyndun, skyn- villa og heimska. En í þessum efnum átti ég eftir að verða fyrir ýmsum árekstrum, sem mér voru hreint ekki kærkomnir og ollu mér talsverðum ónotum“. Sögurnar lýsa nokkrum þessara árekstra. Það má því segja, að fyrirburðir þessir a.'m. k. í fyrstu hafi gerzt í beinni andstöðu við lífsskoðun höf. og trú. Það mun vera nokkurnveginn sama, hverja skoðun menn hafa á því, sem kall- ast dularfull fyrirbrigði, að samt mun ekki hjá því fara, að þeim þyki þessar sögur F. H. B. merkilegar. Við lestur þeirra detta manni ósjálfrátt í hug bækur og frásagnir Hermanns Jónassonar, Draumar og Dulrúnir Þar lýsti gáfaður merkismaður ótali fúrðulegra fyrirbrigða úr eiginni reynslu, og engum datt í hug að efast um sannsögli hans og gjörhygli á hlutunum. Eitthvað líkt fer þeim, sem *) Sögufélagið mun hefja útgáfu þessa rits þeg- ar á næsta ári. Ritstj.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.