Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Page 48

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1939, Page 48
142 NtJAR KVÖLDVÖKUR einkennir Steingrím, svo að jafnvel þeir sem ekki hafa skemmtun að neinum fróð- leik, munu lesa hana sem spennandi skáldsögu. Þorsteinn M. Jónsson. ----ÞK---- Tíu árum seinna. (Þýtt). Klukkan var hér um bil 12. Stóri vísir- inn hoppaði áfram jafnt og þétt. Bráðum hylur hann litla vísirinn. Þá hringja allar klukkur, og ár 1928 tilheyrir fortíðinni. Það leit ekki út fyrir að nokkur hinna mörgu gesta á fína kaffihúsinu, hugsuðu nokkuð um, að hátíðleg stund nálgaðist. Þeir ráku á eftir þjónunum, sem skenktu kampavín, og rauluðu danzlögin, sem hljómsveitin spilaði. Danzlögin, sem 1928 hafði gert fræg, en sem 1929 myndi jafnskjótt gleyma. Þau höfðu heldur ekki ástæðu til annars, en að taka lífinu létt, þessi sex, sem sátu við borð Guy Hamil- ton. Þau voru öll svo ung — svo ung, að lífið var tæplega byrjað fyrir þeim. Guy sjálfur var elstur — tuttugu og fjögra ára, og sjálfkjörinn foringi „flokksins“, eins og þau kölluðu sig. Hann var líka efnað- astur, og hann veitti í kvöld, eins og svo oft áður. Brosandi hallaði hann sér aftur á bak í stólinn og leit yfir hópinn. Það var enginn efi á því, að gestir hans skemmtu sér. Það var eiginlega þessvegna, að hann hafði svo gaman af að safna þessum krökkum í kring um sig. Þau voru alltaf svo kát. Það stóð alveg á sama, hvort hann bauð þeim upp á kampavín í „Gullfuglinum“ eða í skógartúr með ölið og smurða brauðið í körfu á baksætinu í bílnum. — Þau voru alltaf kát. Og núna sat Angela Weston við hlið hans. Hún og Codrik voru að stæla um eitthvað. Codrik las læknisfræði, og var þar að auki mesti. íþróttamaður „klíkunnar“. Hinum megin við borðið sátu þær- Molly Gainsford og Lisa Brendt. Þær- skellihlógu að Marionet-leik, sem Páll Riley lék mjög fimlega með servi- ettu og tveim brauðsneiðum. Augu Lisu hlógu og glömpuðu undir Ijósa hárinu. Hún var yngst í hópnum, og þau litu ölL á hana eins og „litlu systur“. Svo lék hljómsveitin Sonny boy, lagið úr frægustu talmynd ársins. — Þú endar nú sem fræg kvikmynda- leikkona, sagði Páll Riley við Angelu. Hún var nemandi í dramatiska skólan- um og var alveg viss um, að það væri köllun sín, að verða leikkona. — Hæ, heldurðu að ég leggi mig niður að svoleiðis skrípalátum. Þó þeir séu nú farnir að tala í kvikmyndunum, verður það aldrei list. Nei — leikarar — það er dálítið annað! —•• Já, bíddu bara, svo skaltu sjá til. Eftir nokkur ár, verða kvikmyndirnar búnar að útrýma leikhúsunum að mestu leyti. Líklega verða þeir farnir að taka þær með eðlilegum litum um það leyti! Þau hlógu öll að þessu hugmyndaflugi Páls, en Guy horfði hugsandi á hanm Skyldi hann hafa rétt fyrir sér samt sem áður. Auðvitað var hann gáfaðastur af þeim öllum — meir að segja — þeir höfðu tekið greinar og smásögur eftir hann í beztu blöð borgarinnar — en samt sem áður---------! — Klukkan er 12, sagði Guy Hamilton og tók glasið sitt. Við skulum drekka skál nýja ársins og framtíðarinnar! Á sömu stundu sló klukkan 12, og í ysnum og hávaðanum drukku þau úr glösunum. Páll Riley, sem allt kvöldið hafði verið jafn gáskafullur og hin, varð allt í einu hljóður og alvarlegur. — Skyldum við minnast þessarar stundar með gleði og hrifningu eftir svo

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.