Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Page 7
Nýjar Kvöldvökur • Janúar—Marz 1946 • XXXIX. ár, 1.—3. hefti
Karl Kristjánsson:
Egill Þórláksson.
Mér varð dálítið hverft við, þegar ég
heyrði, að Egill Þórlákssoji, kennari á Akur-
eyri, væri orðinn sextugur. Ungleg ásýnd
hans og eittlivað, sem liann ber í fari sínu,
hafði snúið á mig og.látið mig gleyma því,
$5 hann eldist auðvitað að árum, eins og við
hin.
Mér rná hafa farið eins og manninum
áttavillta, sem sagði: Ég hélt, að árdegi væri,
af því að sólskinið var svo mikið.
Sólskinið reyndist ekki vera sönnun fyrir
því, að árdegi væri. En það var samt óyggj-
andi sönnun þess, að glaður dagur væri.
Þannig sólskinssönnun liggur fyrir um
ævidag Egils Þórlákssonar. Hún gleður vini
hans, þó að þeir sjálfir hefðu kosið árdegið
oghafi fundizt það vera enn. Og hún gleður
líka alla þá foreldra, senr hafa aðstöðu til
þess, að koma börnum sínum til hans — í
sólskinið.
• Egill Þórláksson er fæddur 6. marz 1886
að Þóroddsstað í Köldukinn í Ljósavatns-
hreppi í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann er
kominn af góðum og velættuðum foreldr-
um, Nýbjörgu Jónsdóttur og Þórláki Stef-
ánssyni. Bjuggu þau hjón aðalbúskapartíð
siína á ísólfsstöðum á Tjörnesi. Þar andaðist
Þórlákur, þegar Egillvar aðeins sex ára gam-
all. Sysitikyn Egils voru fimrn, öll ung, þegar
faðir þeirra féll frá. Egill fór í fóstur að
Stafni í Reykjadal. Ólst hann þar upp hjá
Páli H. jónssyni, sem nú dvelur að Hvíta-
.felli við Laugaskóla, og konu hans Guðrúnu
T ómasdóttur.
Egill stundaði nám í Gagnfræðaskólan-
o o
i