Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Page 9

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Page 9
N. Kv. EGILL ÞÓRLÁKSSON 3 Agli að telja fingurna á sér og eyrun og aug- un með.“ Sagan er 'betri en löng ræða um snilli kennarans í því að gera námið að leik og láta barnið ekki verða áreynslu vart eða þvingunar við að læra. Þorsteinn Erlingsson talar um: ,,Æskunnar barnglaða, blíðróma ljóð, sem biður þess sumarið aldrei að líða.“ Það er frábært, hvað Egill Þórláksson skilur vel „æskunnar barnglaða, blíðróma ljóð“, — og hvað hann kann vel að taka und- ir það. Hvað hann er fundvís á þetta ljóð — og hjálpfús við það — í litlum, vanmáttug- um barnssálum, sem annars geta ekki látið til sín heyra. Hann ann hverju barni og trúir á hæfi- leika þess og eðliskosti. Og honum verður undursamlega að trú sinni. Ástúð hans ogdltrú fara um smábarnasál- irnar eins og bjartur og hlýr vorgeisli um ógróið land, sem tekur um leið að skjóta frjóöngum. Það er vafalaust mikill gróður og góður, sem Egill er búinn að vekja til lífs í sálum nemenda sinna öll sín mörgu kennsluár. Hann hefir — eins og aðrir kennarar — tekið á sig mikla ábyrgð með starfi sínu. Hann hefir líka gert sér grein fyrir þeirri ábyrgð, og unnið með þeim rétta skilningi, að barnakennsla er heilagt verk. Framtíð íslands er óráðin. En eitt er víst: Það verður ekki uppeldisáhrifum Egils Þór- lákssonar á þjóðarsálina að kenna, ef íslend- inga brestur góðleik og drengskap til þess að geta verið farsæl þjóð og hamingjusöm. Mér kom á óvart, að Egill Þórláksson er orðinn sextugur. Ég hafði ekki fylgzt með eykturn, af því að dagurinn var svo bjartur og glaður. Ég óska þess og vona, að birta og gleði dagsins endist enn lengi. Ég geri það ekki aðeins vegna Egils sjálfs og hans nánustu, heldur líka af þeirri miklu ástæðu, að lieim- urinn þarfnast mjög mikið manna eins og hans. — ísland þarfnast þeirra, og þeir fæð- ast alls ekki á hverjum degi hjá svo lítilli þjóð. Ég flyt Agli hér með hugheilar þakkir Húsavíkur fyrir dvöl hans þar. Sérstaklega hefi ég verið beðinn að flytja honum vinarkveðju æskunnar, sem hann hafði í skóla í Húsavík. í hugum þeirrar æsku tilheyrir hann súmrinu, séin hún „biður þess — aldrei að líða.“ KRISTÍN M. J. BJÖRNSON: Ljósþrá. Ó, mannkynsbernska’ í villuvanda með vanans þrönga sjónarmið, en draumafegurð innri anda og æðri heima sjónarmið. Hvenær mun sál þín ljósið líta, er langa stund hún þráði mest, og bönd við hulda heima knýta, er hjartans ljósþrá treystir bezt. Það sýnist langt, þér sem að bíður og sáran þráir dagsins ljós; þó dagar, morgunbjarmi blíður þér birtist lífsins sigurhrós. Þú átt þess kost að velja’ og vilja ei viðleitninni’ er markað skeið; þín sára þrá að sjá og skilja til sigurs ber þig alla leið. 1»

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.