Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Side 26

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Side 26
20 FLÓTTAMENNIRNIR N. Kv. þar gegndrepa. Weiner varð ákaflega sjó- veikur. Telez líka. Pennington lá rétt við hliðina á mér. „Eg er núna fyrst að gera mér grein fyrir því,“ sagði hann „hve auð- virðilegur maðurinn getur verið . . . .“ Louis Benet ranghvolfdi í sér augunum. Hann var orðinn grænn í framan af hræðslu. Flaubert var hættur að kveina og kvarta. DuFond var einna líkastur drukknaðri rottu; hann var náfölur í framan. Cam- breau lá með aftur augun. Mér varð star- sýnt á rósemina í svip hans. Stundum komu eldingar, sent við gátum ekki kornið auga á. Við sáum aðeins bjarm- ann af þeim, og lieyrðum í þrumunum í fjarlægð. Hafrótið var ógurlegt og ofsarokið skók bátinn svo að það lirikti í honum stafna á milli. Við liöfðum haft fokkuna uppi til að bát- urinn gæti haldið stefnunni, en það stóð ekki lengi. Snöggur hvinur gerði okkur að- vart um þegar hún fauk, og þegar liún fór, þá var það svo um munaði, því það var ekki tætla eftir af lienni. Aldrei fengum við að vita hvert f’okkan fór, því að þegar við litum upp sáum við aðeins þríhyrndan strenginn senr liafði verið utan um hana. Nú vissi eg, hvað rok var. Þessa nótt baðst eg fyrir í fyrsta sinn á tólf árum. XX. Morguninn eftir sá eg að hafið getur ver- ið hræsnari. Fjallháu öldurnar voru horfn- ar. Það voru nú aðeins krappár bylgjur ’og kvikul undiralda. Öldurnar voru ekki lengur háar, eða livítfreyðandi. Það var þykkskýjað í nokkrar klukkustundir, en svo brauzt sólin í gegn um skýin og setti ennþá meinleysislegri svip á Iiafið. I samanburði við kvöldið áður, virtist al]t ósköp blítt og friðsamlegt. Maður gat næstum því séð það hlakka af ánægju og sleikja út um eftir að vera búið að gleypa Verne. Það fór hrollur um mig. Eg var ekki feginn því að Verne var dáinn. Það var hræðiiegt að deyja á þenna hátt. Við vorum búnir að missa matinn okkar og vatnið líka. Við uppgötvuðum það, þegar DuFond gaut flóttalega til okkar augunum og sagði: „Get ég fengið vatnssopann minn núna? Ég er þyrstur." „Það er sjálfsagt," sagði ég. „Hvaðan úr fjandanum hefurðu nú þann vísdóm?“ hreytti Weiner út úr sér og var nú orðinn ærið valdsmannslegur. „Það er ég, sem stjórna núna, og það er eins gott fyrir ykkur alla að fara eftir því, sem ég segi, skilj- ið þið það?“ „Ertu nú aftur orðinn að einræðisherra?” spurði ég. ,»Þú heyrðir, livað égsagði," sagði hann. „Fyrst þurfti Moll að deyja til þess að þú gætir tekið við forustunni," sagði ég. „Svo þurfti Verne að deyja. Hvers vegna léztu ekki til þín taka meðan Verne var á lífi?“ „Þegiðu eins og steinn!“ sagði hann. „Ég heyrði þig ekki skipa neinum fyrir, meðan Verne var hérna í bátnum,“ sagði ég. „Ég var ekki hræddur við Verne,“ sagði hann. „Þú heyrðir, hvert ég skipaði lionum að fara. Verne var óttaleg gunga. Þú heyrðir vel, hvað ég sagði við hann.“ „Hann gat nú ekki gert þér mikið, meðan hann sat aftur í skutnum," sagði ég. „Ég var nú ekki feiminn við að segja við hann það, sem mér bjó í brjósti. Og ég er ekki neitt feiminn við þig heldur.“ Weinef setti upp merkissvip og reyndi að gera sig sem illilegastan. Ég hló hranalega. „Jæja þá. Þú ert einræðisherra. Heill sé Weinerl“ „Hættu þessu,“ sagði hann byrstur. „Þú skipaðir ekki mikið fyrir í gær- kvöldi,“ sagði ég. „Ég býst við að einræðis- herrar séu ekki upp á sitt allra bezta þegar þeir eru að kasta upp. Hef ég rétt að mæla? .... Geta einræðisherrar ekki skipað fyrir, þegar þeir eru sjóveikir?“

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.