Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Blaðsíða 32

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Blaðsíða 32
‘2b FLÓTTAMENNIRNIR N. Kv. um inn. Ég ætla að reyna að komast um borð í það.“ „Þú liefur ekkert vegabréf'," sagði ég, „Það er aiveg sama,“ sagði hann. „Ég ætla samt sem áður að reyna það. Hver veit nerna þeir taki mig með sér.“ „Þeir taka þig ekki með,“ sagði Cambreau og liristi höfuðið. „Ég ætla nú samt að reyna það,“ sagði Pennington og brosti. „Það skaðar ekki að reyna.“ „Hvað eigum við að gera við Flaubert?" spurði ég. „Við getum ekki látið iiann rölta um á eigin spýtur. Við berum ábyrgð á hon- um.“ „Já,“ sagð Flaubert. „Ég er aleinn! Það má ekki skilja mig einan eftir! Ég verð hræddur, ef ég verð einn! Aumingja Rud- olph, öllum stendur á sama um þig. . . .“ „Ég skal líta eftir þér,“ sagði ég. „Nei,“ sagði Cambreau. „Ég skal sjá um Flaubert. Farðu bara, það verður ekkert að Flaubert hjá mér. Ég get lofað þér því.“ Benet sagði ekki neitt. Hann stóð og neri saman höndunum, og beið eftir því að við værum búnir að tala um þetta. Að lokum kom okkur saman um að koma allir aftur niður að bátnum um kvöldið, og athuga hvað hægt væri að gera. Ég gekk einn inn í borgina. Fólk horfði forvitnislega á mig. Það fékk mig til að muna eftir því, hve hörmulegur útlits ég var. Ég var með viku skegg, og fötin mín voru í tætlurn. Ég fór allur hjá mér. Eg fór fram lijá rakarastofu, sneri við, og fór inn í hana. Rakarinn sat á einum stóln- um, og var að lesa í dagblaði. Hann lagði það frá.sér, þegar hann varð mín var, stóð á fætur og bauð mér sæti. Hann tók andköf þegar hann leit á mig. „Hamingjan hjálpi ,mér!“ „Ég er víst ekki frýnilegur útlits,“ sagði ég. „Ég hef verið úti á rúmsjó í heila viku. Við fengum vont veður.“ „Það hlýtur að hafa verið sérstaklega slæmt,“ sagði hann. „Ég þarf líka að fá önnur föt,“ sagði ég. „Getið þér sagt mér livar ég get fengið ódýr föt? Ég er ókunnugur hérna í borginni." „Það er hægðarleikur," sagði hann. „Það er búð hérna nálægt í þessari sömu götu. Þeir hafa ágæt föt fyrir gjafverð." „Þakka yður fyrir,“ sagði ég. „Við skulum nú sjá,“ sagði hann. „Hvað viljið þér láta mig gera við yður?“ „Ég ætla að biðja yður að raka mig,“ sagði ég. „Og þvo mér um höfuðið. Laga mig svo- lítið til. Það eru ósköp að sjá mig.“ „Satt er nú það,“ sagði hann. „Jæja.“ Hann byrjaði á því að raka miig. Húðin var mjúk og slétt þegar hann var búinn. „Þér ltafið þó ekki komið á einhverju af stóru skipunum, eða hvað?“ spurði hann. „Nei, bara á opnurn bát.“ „Er þetta í fyrsta sinn, sem Jrér komið til Port of Spain?“ „Já.“ „Beygið þér höfuðið ofan að skálinni.... Svona. Ég verð að bera duglega í það sápu .... Hvaðan sögðuð Jrér altur, að þér hefð- uð látið úr höfn?“ „Ég sagði ekkert um það,“ svaraði ég. „Farið þér varlega. Þér meiðið mig.“ „Fyrirgefið Jiér,“ sagði hann. „Hárið á yður er í einni flókabendu. Á litlum bát, ha? Þér eruð þó vonandi ekki einn af þessum náungum, sem sigla kringum jörðina á opn- um bát, eða hvað?“ Ég sagði: „Það var laragt frá því að þetta væri skemmtiferð.“ ,,Ó,“ sagði liann. „Verzlunarferð, ha?“ „Hún var nauðsynleg." „Nei!“ hrópaði hann. Hann gekk svolítið aftur á bak og glápti svo á mig. „Nei, þér eruð þó ekki einn af sakamönn- unum, sem sluppu frá Guiana?“ Ég stirðnaði ósjálfrátt upp, en náði mér fljótt aftur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.