Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Blaðsíða 44

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Blaðsíða 44
38 FLÓTTAMENNIRNIR N. Kv. „Hvað?“ hrópaði Weiner. „Það er einmitt það,“ sagði ég. „Við fá- um ek!ki að dvelja hér.“ „Hvern fjandann áttu v.ið?“ „Við fáum ekki að vera hérna, við verð- urn að fara. Við verðum að vera farnir héð- an innan tuttugu og fjögurra klukkustunda, að öðrum kosti verðum við tekriir fastir og framseldir." Weiner starði á mig, og hrækti svo á bryggjuna. Eg sagði lágt við Cambreau: „Þú vissir, að þetta mundi koma fyrir.“ „Já,“ sagði 'harin. „Hvert höldum við næst?“ spurði ég. „Til Santiago de Cttba,“ sagði hann. „Komumst við allir þangað heilir á húfi?‘ spurði ég. „Allir?" sagði hann. „Já.“ „Og hvert er ferðinni heitið þaðan?“ spúrði ég. „Til Florida," sagði hann. „En við kom- umst ekki þangað allir.“ „Fjandinn liafi það!“ sagði Weiner. „Ég botna hvorki upp né niður í þessu! Hvernig komst lögreglan á snoðir um það að við vær- um hérna? Hvar gátu þeir snuðrað það uppi?“ „Benet sagði þeim það,“ sagði ég. „Hann er í fangelsinu.“ „í fangelsinu?“ sagði Weiner. „Og fyrir hvern fjárann?“ „Hann elti stúlku." Þetta hneykslaði Weiner; ég veit ekki hvers vegna, en það gerði það. Hann var oft búinn að stríða Benet á þessu, en þegar hann fékk að vita að Benet hefði í raun og veru gert aðra tilraun fáum klukkustundum eftir að hann var kominn á land, }rá hneykslaðist hann á því. Ég gat séð að liann var mjög fölur. Hann sagði ekki stakt orð. Hann tók með báðum höndum utan um höfuðið og starði beint fram undan sér. Báturinn vaggaði blíðlega með sjávarfall- inu. Cambreau hélt áfram að horfa brosandi á mig. Loksins sagði ég: „Það gengur sá orðróm- ur í svertingja'hverfinu að Jesús Kristur hafi verið j^ar í kvöld.“ „Það er rangt,“ sagði liann og brosti. „Ég veit það,“ sagði ég. Ég þagði lengi. „Einu sinni hélt ég að það gæti verið, að þú værir hann.“ „Það er hlægilegt," sagði hann. „Hvers vegna segir þú þetta?“ „Þú læknaðir augu mín,“ sagði ég. „Þú læknaðir halta drenginn. Þú læknaðir blindu gömlti koriunnar." „Það er ekki neitt,“ sagði hann. „Það 'kemst ekki til hálfs á við hvað ég get gert. Það kemst ekki til hálfs á við það sem þú getur gert.“ „Áttu við Jrað, að ég hefði einnig getað læknað drenginn?“ „Auðvitað hefðir Jrú getað það.“ „En hvernig?" „Ja,“ sagði bann. „Það er erfitt að útskýra Jrað. Þú hefðir orðið að sjá hann heilbrigð- an í staðinn fyrir haltan. Þú hefðir orðið að vita, að Jrrátt fyrir Jrað hve raunverulegt Jretta var fyrir hann, Jrá var það aðeins tál- mynd hans eigin trúar, að það væri ekki raunverulegt. Þegar þú hefðir vitað það og vitað hvers vegna, það var ekki raunverulegt, þá hefðir þú getað læknað hann.“ „En hvernig ætti ég að geta það?“ spurði ég. „Ég er ekki nema maður.“ „Það er ég heldur ekki,“ sagði hann. „En [tú ert frábrugðinn mér,“ sagði ég. „Nei, J^að er ég ekki. Ég er alls ekki frá- brugðinn Jrér.“ „En allt sem þú gerir er rétt, allt er full- komið." „Það ætti að vera Jrað,“ sagði hann. „Ég geri Jretta allt fyrir annan. Mér getur aldrei fatazt. Sjáðu til, Guð stendur alltaf að baki mér. Þegar égmissi sjónar af honum, þó Jjað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.