Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Síða 48

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1946, Síða 48
42 FLÓTTAMENNIRNIR N. Kv. „Ég held, að það sé að bresta á óveður. Líttu þarna í norðaustrið, læknir.“ Eg leit þangað senr hann benti mér og sá svartan rnökk berast óðfluga nær okkur. Það var tekið að dimma í lofti. Ég leit framundan og kom um leið auga á Telez og DuFond í framstafninum. Telez lá makindalega endilangur á bakinu og Du- Fond var að leika sér að kaðalsspotta. Hinir voru undir þiljum. Eg kallaði til þeirra og sagði þeim að fara niður í káetu. Þeir stóðu á fætur og flýttu sér niður. „Hvað ætlar þú að gera?“ spurði Weiner. „Ég ætla bara að binda stýrishjólið og fara svo niður í káetu,“ sagði ég. „Það er ekkert skjól Iiérna á þilfarinu. Við gætum kastast útbyrðis." „Við verðum að lækka seglin," sagði Weiner. „Þau geta annars rifnað þegar þessi stormur nær okkur.“ Mér hafði ekki dottið það í hug, svo ég batt stýrishjólið og við fórum fram á, hleyptum niður framseglinu og bundum það. Óveðrið færðist óðfluga nær, miklu liraðar en ég hafði haldið. Við náðum niður stórseglinu og festum það við rá, og fórum svo aftur fram á, en okkur vannst ekki tími til þess að ná fokkunni alveg niður. „Farðu niður í káetu,“ skipaði ég Weiner. „Nei,“ sagði hann. „Það er ekki hægt að skilja við stýrið. Við erum staddir á gufu- skipaleiðum. Það verður einhver að vera kyrr við stýrið." „jæja þá,“ sagði ég. „Ég verð þá kyrr.“ „Nei,‘ s'agði hann, „ég skal gera það. Þú getur farið niður. Ég reyri mig fastan svo að ég geti ekki skolast útbyrðis.“ „Ég skal gera það,“ sagði ég. Ég fann nú reyndar enga löngun ltjá mér til þess, en þar sem þetta var á þeinr tíma sem ég átti að stýra, þá kunni ég illa við það að fara frá jrvi'. „Þú getur það ekki,“ sagði Weiner. „Þú hefir enga krafta til þess að berjast við stýrishjólið. Og svo ertu þar að auki kvið- slitinn. Ég skal reyna það. Ég get ráðið við það.“ „Þetta-er ekki þér Mkt,“ sagði ég. „Jú, einmiitt,“ sagði hann. „Ég skal sjá um stýrið. Þetta líkar mér einmitt.“ „Jæja þá,“ sagði ég. Hann tók við stýrinu og ég horfði á með- an hann batt sig fastan svo að honum skolaði ekki útbyrðis. Vindurinn hvein í reiðanum. Það brakaði í hverju tré. Það skall á helli- rigning af norðri. „Heyrðu!“ hrópaði Weiner, svo að ég heyrði til Iians gegnunr veðurhaminn. „Farðu niður og settu vélina í gang. Fulla ferð áfram. Það verður að vera eitthvað skrið á skonnortunni n' Jressu veðri, annars sökkvum við.“ „Ég skal gera það,“ sagði ég. Ég fór niður undir þiljur og lokaði lúku- gatinu vandlega á eftir mér. Hann var al- einn eftir uppi. Ég setti vélina í gang. Við það hætti skipið að velta eins mikið og við fórum að hreyfast áfram. Weiner liafði haft rétt fyrir sér. Hann var að verða ágætur sjómaður. Pennington hafði lokað skáphurðunum vel og vandlega svo að matarílátin brotn- uðu ekki. Ég heyrði glamrið í pottum og pönnum innni í eldhúsinu. Lamparnir sem héngu í loftinu sveifluðust fram og aftur. DuFond lá uppi í þilrekkju. Hann starði stöðugt á lanrpann og við hverja hreyfingu skipsins, greip hann með báðum höndum um bríkina á þilrekkjunni og hvítir hnúarn- ir sáust mjög greinilega í hálfrökkrinu. Flaubert var grátandi. Látbragð Telez var ólundarlegt að venju. Ég klifraði upp í þil- rekkjuna rnína og fór að horft út um kýr- augað. Sjórinn var í einu löðri. Bylgjurnar slógust á kýraugað, svo ekkert sást út um það, svo rann sjórinn aftur af glerinu og allt sást eins og í þoku. Það mátti með sanni segja, að þetta væri óveður. „A umingja Rudolph!“

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.