Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Side 17
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
47
Faðir Mary gaf svo skýrslu sína til stöðv-
arstjórans og auðvitað sagði Jens ekki eitt
einasta orð. En heil! hópur af sóðalegum
og óhreinum mönnum þyrptist í kringum
hann, klöppuðu á axlir honum og sögðu
að hann væri »hetja«. Svo drakk hann öl
með þeim í eimreiðarskemmunni og skiftu
bróðurlega mat sínum milli sín og hans.
Eins og Jens hafði óskað, kom nafn hans
í blöðunum og hafði það tilætluð áhrif á
Mary. Par að auki misti hann ekkert af
spariskildingum sínum, en gat nú keypt
handa henni skrautlegan hring. Því að auð-
vitað fjekk hann borgun fyrir ferð sína eftir
þökunum.
»En að maður, sem ekkert vit hefir á
eimreiðum, skyldi veita því eftiríekt að alt
væri ekki í lagi, er þó mikilfenglegast,«
mælli faðir Mary. »Fyrir slíkum manni tek
jeg ofan!«
HÖFUÐBORGIR.
2. London.
Til skamms tíma hefir London verið stærsta
borg heimsins og sennilega hefir aldrei áður ver-
ið stærri borg til fyr en New-York nú. Hún hefir
v'erið stærst bæði að ummáli og fólksfjölda. Frá
norði til suðurs er hún 19 kilóm., frá veslri til
austurs 26 km, flatarmál hennar er 305’ og við
manntal 1921 voru íbúarnir 7,514,614. Ef öll út-
hverfi eru talin með, sem i raun og veru er rjett,
verða íbúarnir 8—9 milj. Svo stór er borgin, að
hún sendir 61 pingmann til neðri deildar parla-
mentisins og er það hjer um bil ’/io partur af
þingmannafjöldanum. í London situr stjórnin, þar
er parlamentið, stærstu bankar og rikustu kaup-
hallir Evrópu, en ekki er hægt að segja, að Lon-
don sje miðstöð fyrir enska mentun og menningu.
Hinar öflugustu mentastofnanir eru í hjeruðum úti
á iandinu, eins og háskólarnir í Oxford og Cam-
bridge. Andleg vinna getur ekki sætt sig við allan
þann hávaða og gauragang, sem er i London, par
sem aðaláhrifamálin snúast um verslun, peninga
og kauphallargróða Umboðsstjórn j^essarar risa-
borgar er að nokkru leyti í hönduin bæjarráðs
(London County Council) og að nokkru Ieyli í
höndum 28 „Boroughs", sem hver stjórnar sinum
bæjarhluta og loks stjórnað að nokkru leyti af
innanríkisráðuneytinu, sem t. d. ræður yfir lög-
reglunni. Sjálf borgin (,,City“), sem einu sinni var
hin eiginlega London, en sem nú er orðin aðeins
innskotssvæði i risaborgitmi, hefir sitt sjerstaka
ráð með borgarstjóra og 26 öldungum í broddi
fylkingar. Vopnuðum hermönnum er bönnuð um-
ferð um „City“ og sjálfur konungufinn verður að
fá leyfi til að koma þangað. Það er ein af hinum
gömlu erfðavenjum Englands. Yfirleitt má segja,
að borginni sje vel stjórnað, þótt nokkur kritur
kunni að vera milli hinna ýmsu umdæma. Inni I
borginni eru ótal skrautbyggingar, en hin þjett-
bygðu hverfi hafa einhvern þunglyndisblæ yfir sjer
og stafar það mikið af því, að byggingastíllinn er
svo líkur og hinu raka, þokukenda Ioftslagi. Oft
er þokan í London svo þjetí, að ekki sjást handa-
skil. Stórir skemtigarðar, eins og Hyde Park o. fl.,
draga nokkuð úr fábreytninni.
Ríkidæmi sitt, verslun og stærð á London eink-
um að þakka legu sinni að Themsánni, sem mynd-
ar höfnina. Þar eru skipakvíarnar. í „City“ eru
kauphallirnar og aðalbankarnir, í Westminster er
Westminster Abbey, ineð gröfum allra helstu stór-
menna Englands, og þinghúsið (parlamentið). St.
Pálskirkjan er stærsta mótmælenda-kirkjan I heimi,