Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Blaðsíða 29

Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Blaðsíða 29
NYJAR KVÖLDVÖKUR. 59 »Ippolito hefir sýnt mátt vínsins yfir hold- inu. Hann sefur úti í hesthúsi.« »Fullur! Ó, asninn sá arna! Jeg ætti að hressa upp á hann með svipunni,« mælti Savigno reiður. »Vertu góður við hann. Jeg held að Lucrezia viiji hvorki sjá harvn nje heyra, veslings manninn. Hann er veikur af ógæfu- samri ást.« »Oott! Við látum hann sofa úr sjer vím- una. Jeg gæti heldur ekki verið harðbrjósta við hann í dag. Og nú skulum við fara að kveðja, þótt mjer sje mjög á móti skapi að verða að fara.« V. KAFLI. Miðnæturreið. Hinir þrír menn riðu burt út úr garðin- um bakdyramegin til þess að spilla eigi gleðinni. »Petta er þá síðasta ferðin,« sagði Nor- vin, þegar þeir voru komnir að fjallinu, sem aðskildi þá frá Martinello. sJá, framvegis spörum við hestana. I fyrramálið förum við með morgunlestinni. Helmingur íbúa San Sebastiano mun fylgja okkur, allir í sparifötunum. Hann Ricardo hjerna kemur í nýju, brúnu fötunum sín- um. Er það ekki, Ricardo?« »Jeg held það væri best að þegja,« mælti ráðsmaðurinn hvatskeytislega. »Vegurinn er skuggalegur. Hver veit hvað kann að bíða okkar.« »Vitleysa! Við erum þrír saman, vopn- aðir. Jeg ímynda mjer, að Narcone og tæp- lega sjálfur Cardi þyrði að ráðast á okkur.« Ferara glotti, en hjelt uppteknum hætti, að ríða spöl á undan. Norvin tók eftir því, að hann ljet riffilinn hvíla á hníkknefinu, svo að hann leysti ósjálfrátt reimina af byss- unni sinni, svo hún yrði til taks, ef til þyrfti að taka. Pað var tunglsskinslaust, en stjörnubjart, svo að þeir sáu þolanlega til vegar, þótt dimt væri til beggja handa. Nokkrir hljóm- ar frá veislunni á Terranova bárust enn að eyrum þeirra og Ijósin skinu milli trjánna niðri í dalnum. »Æska! Ó, hve þú ert indæl!« hrópaði Martel, sem árangurslaust hafði reynt að þegja. »Ricardo vili að við læðumst eins og ræningjar, enda þótt hjörtu vor sjeu svo full af gleði, að fögnuðurinn bergmáli í eyrum vorum. Pað er ekkert ilt til í ver- öldinni í kvöld, því að allur heimurinn er ástfanginn og í fyrramálið kveður hann upp úr með ást sína! Og jeg er konungur alls þessa!« »Samt sem áður mun mjer þykja stórlega vænt um, þegar jeg hefi skilað yður heil- um á húfi,« mælti gamli maðurinn. »Þeir eru byrjaðir að skjóta flugeldunum,« mælti Blake. »Pað var leiðinlegt, að þú gast ekki verið við, Martel, til að sjá það.« Hann sneri sjer við í hnakknum og hinir námu staðar til að horfa á flugeld, er Ieið til himins og sprakk þar og varð að ótelj- andi eldsgneistum. Fleirum var skotið og heyrðust daufar þrumur. »Veslingarnir!« sagði greifinn innilega. >Jeg heyri að þeir kaila: Ó, ó! Petta er engill frá himnum!* »Jeg þori að veðja um, að þeir enda á því að hrópa: »Þetta er engill frá San Se- bastiano!* Þú hefir haldið þeim dýrðlega veislu.* Oreifinn hló. »Já. Þeir hafa fengið nóg til að tala og dreyma um. Líf þeirra er ömurlegt, eins og þú veist, en jeg vona, að okkur Margheritu auðnist að bæta kjör þeirra, þegar tímar líða. Heldurðu það ekki? Þegar þeir hafa kynst mjer, þegar þeim hefir þótt nógu vænt um mig og eru farnir að íreysta mjer, mun rísa upp ný öld yfir Terranova og San Sebastiano.* »Jeg er viss um, að þeim er þegar farið að þykja vænt um þig.« »jeg er þeim of ókunnur enn. Jeg hefi 8*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.