Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Blaðsíða 24

Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Blaðsíða 24
54 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Hún fann, að hann horfði á sig og leit einarðlega á hann og spurði: »Hvað gengur á? Pað er eitthvað, sem þjer vilduð segja.« Hann áttaði sig í flýti. »Nei! Bara — að þjer eruð svo ger- ólíkar því, sem jeg hafði búist við.« »Og þjer einnig,« mælti hún hlægjandi. »Pjer eruð mikið betri en jeg bjóst við, og mjer líst vel á yður og óska, að þjer vilduð segja mjer alt um sjálfan yður.« Pelta var yndislegur dagur fyrir Blake. Sikileyiska stúlkan gerði hann þegar að trúnaðarmanni sínum — skilmálalaust. Pað var ekki upphaf neins kunningsskapar, held- ur eins og þau hefðu þekst alla æfi. Hann dáðist að henni og fegurð hennar og hlust- aði á hana með vaxandi nautn. Martel dró eigi dul á gleði sína yfir því, hve fljótt hefði tekist með þeim vinátta og miðdegisverðurinn var mjög skemtilegur — sá skemtilegasti, er Iengi hafði verið á Terranova. Með því að Iangt var til San Sebastino neyddust ungu mennirnir til þess að fara tímanlega~af stað, en'varla voru þeir komnir úr áheyrn kvennanna, fyr er Martel stöðv- aði hest sinn og spurði vin sinn með ákefð: »Nú? Pú veist að jeg er að sálast úr forvitni. Hvað segir' þú svo?« Blaj^e"svaraði.honum undarlega hikandi: »Pú hlýtur að vita það, án þess að þú þurfir að ] spyrja. Pað 'er ekkert að segja, nema það eitt, að hún er yndisleg. — Hún er breytileg — aðdáunarverð — jeg — jeg— « — »Einmitt.« Savigno hló hjartanlega ánægður. — »SIík kona er eigi til.« Pegar Blake fór að hátta um kvöldið, fór hann eigi strax að sofa, því að hann ótt- aðist sjálfan sig og þeim ótta varð eigi svo auðveldlega burtrýmt. IV. KAFLI. Veislan d Terranova. Næstu daga sá Norvin Blake greifinnuna oft, því að þeir Martel fóru daglega yfir að Terranova. Hann hafði að hálfu leyti sjeð sannleik- ann. Kvöldið eftir að hann í fyrsta sinni sá ungu stúlkuna og næstu dagar þar á eftir höfðu fært honum heim sanninn um það, sem hann helst hefði viljað varast. Hann gat eigi lengur efast um, að hann væri tak- markalaust ástfanginn í brúði besta vinar síns og vitneskjan um þetta olli honum þyngstu sálarkvala. Pað var ekki augna- bliksást, því að honum fanst sem hann hefði alt af þekt og elskað þessa ungu stúlku. Hann hafði eigi ímyndað sjer, að svona bráð ást væri til og hlegið margoft að þeim hæfileika Martels, að geta orðið bráðástfanginn á augnabliki og hætt því aft- ur jafnskjótt, en þrátt fyrir bláköld rök og alvarlegar sjálfsásakanir, hafðiþó ástríða þessi algert vald yfir honum. Petta var fyrsta sálarstríðið, er hann hafði átt í, og af því að hann hafði meiri stjórn yfir sjálfum sjer en alment gengur og ger- ist, tókst honum að leyna þessu svo, að Martel, sem var holdleg ímynd drengskapar og göfugrnensku, grunaði ekki neitt um sannleikann. Og unga stúikan var svo drukkin af harpingju sinni, að hún tók eigi eftir neinu. Hún gerðist vinur Blakes alveg skilmálalaust eins og henni var svo eigin- legt. Ósk hennar um að þola alt með manni sínum olli því, að hún ásetfi sjer að geðjast Ameríkumanninum sem best og hafði það þegar tekist mikið betur en hana sjálfa grunaði. Hún ræddi um hin alvarlegustu málefni af mesta áhuga og óttalausri hrifni; stund- um var hún logandi af áhuga fyrir einhverju og jafnskjótt fallin frá því aftur. Hún var ein þeirra kvenna, sem ráða fyrir mönnum, sem gefa þeim hugsjónir með andagift sinni,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.