Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Blaðsíða 30

Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Blaðsíða 30
60 NYJAR KVÖLDVÖKUR irassað skyldur mínar, en á ferðum mínum hefi jeg lært ýmislegt, sem mun koma okk- ur öllurn að góðu gagni. Jeg veit um svo margt, sem jeg get gert. Það er yndislegt að vera ungur og vongóður og hafa ráð á að uppfylla vonir sínar. Fyrst og fremst er það yndislegt að vita að til sje maður, sem tekur þátt í metnaði og tilraunum manns. — Jeg sje, að Ricardo er óánægður með mig, en hann er bölsýnn. Hann trúir hvorki á gjafmildi eða kærleika.* »Hvaða þvaður er þetta!« mælti gamli maðurinn önugur. »EIska jeg ekki barnið mitt, Lucreziu? Elska jeg ekki yður, greif- innuna og marga aðra?* Martel hló. »Jeg ætlaði bara að stríða yður.« Þeir hjeldu ferðinni áfram og greifinn tók nú í ofsagleði sinni að syngja lagstúf. Blake reið jafn þögull sem Ferara, niður- sokkinn í hugsanir yfir gæfu þeirri, sem hann átti engan hlut í. Hann var þreyttur á sál og líkama og horfði viðutan á gráan veginn, sem leið fram hjá. Það var í þessum svefnmóks hugleiðing- um, að hann alt í einu reið inn í hvítgló- andi iðu af hræðilegum atburðum. Norvin Blake mundi aldrei nákvæmlega röð þeirra atburða, er nú gerðust, því að alt gerðist í of skjótri svipan til þess, að hann gæti veitt nokkru nákvæma athygli. Hann mundi, að vegurinn lá fram undan eins og leyndardómsfull gjá; beggja vegna var myrkrið biksvart eins og ókleifur vegg- ur og hugsun hans var víðs fjarri, er hest- ur hans alt í einu tók að prjóna og hafði næstum því kastað honum af baki, svo að hann kom til sjálfs sín. Jafnframt heyrði hann, að Ricardo rak upp óp, er mest líkt- ist hræðsluópi og skar það eins og sverð í gegnum söng Savignos. Honum fanst sem hjartað staðnæmdist í brjósti sjer. Eld- leyftri brá fyrir vinstra megin við hann og rauf næturkyrðina. Skógurinn, sem áður var myrkur og þögull, drundi af skothríð og lýstist af leiffrum skofanna og vegurinn fyltist af mönnum, sem börðust upp á líf og dauð?. Hestur Blakes reis á aftuifæt- urna, er svört þústa á veginum reis á fæt- ur og þreif utan um beislið. Hestur Marfels þrengdi honum út á vegarbrún, en fjell svo spriklandi og sfynjandi til jarðar, helskotinn. Hestur Ricardo þaut í burfu mannlaus. Hafði fyrirsátursmönnum tekist að sviffa honum af baki og barðist hann nú eins og óður maður á miðri brautinni. Norvin heyrði, að Martel kallaði eitthvað, en svo var hann dreginn af baki, annaðhvort af manna höndum eða trjágrein. Við fallið misti hann meðvitund um stund, en reis þó von bráðar á fætur, en var þá tekinn af grímuklæddum manni og haldið, Hann reyndi að losa sig, en fann, að hann var algerlega aflvana eins og ómálga barn. Hann var gripinn af mörgum höndum og reyndi eigi framar að sleppa. Óvissan og það, hvað í húfi var, ef illa færi fyrir Martel, fjekk svo á hann, að hann æpti upp eins og maður, sem er möru troðinn. Rödd skipaði honum að þegja og heitur andardráttur nam við kinn honum, en hann rjeði eigi við hræðslu sína, svo að einn af gæslumönnunum greip fyrir háls honum. Hann heyrði Savigno kalla og sá honum bregða fyrir sem snöggvast; sá hann, að annar maður rjeðist á hann og heyrði loks að kall hans endaði í kvalastunu, sem hann aldrei gleymdi meðan hann lifði. Það var engu líkara en greifinn væri enn forviða á því, að síðasta stund hans væri komin. Ef til vill hefir Blake svimað. Að minsta kosti gat hann hvorki hreyft Iegg nje lið, og hið næsta, sem hann mundi, var það, að hann var dreginn þangað, sem bjartast var á veginum. Það var ekki batist Iengur, þótt enn væri æsing í röddum mannanna og hann heyrði marga þeirra stynja sáran. Maður einn, hár vexti, þurkaði hendur sín- ar á nýreittu grasi, sem hann reif upp við veginn og bölvaði hástöfum.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.