Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Qupperneq 19
NYJÁR KYOLDVOKDR
ÚTQEFAND!: I’ORSTEINN M. JÓNSSON, AKUREYRI.
XXI. árg.
Akureyri, 15. maí 1928.
4. hefti.
L A MAFIA.
Saga eftir REX BEAC H.
»Þú sjerð aðeins yfirborðið. Sikiley er
hjer um bii eins og hún var á dögum afa
míns. Pú spurðir áðan um La Mafia. Já,
hún er til. Hún drap föður minn og neyddi
niig til að yfirgefa heimili mitt og lifa land-
flótfa. — Pað er löng saga þess máls, sem
þú varla munt geta skilið nema því aðeins,
að þú hefðir þekt eðli föður míns og Sikil-
eyinga yfirleitt. La Mafia er enginn trúar-
bragðaflokkur, ekkert fjelag morðingja og
ræningja, þannig eins og þið útlendingar
hugsið ykkur; það er þjóðarhatur til alirar
yfirdrotnunar og einstaklings yfirlýsing um,
að hann sje hafinn yfir lög og rjett.«
»Já, en jeg skil þetta ekki almennilega!
Þú segir, að það sje samband og þó er það
ekkert fjelag. Það ræður yfir eyjunni og
þó segir þú, að það sje aðeins þjóðar-inn-
rætið. La Mafia verður að hafa höfuð og
hendur!«
»Hún er höfuðlaus, eða rjettara sagt, hún
hefir mörg höfuð. Það er ekki flokkur
glæpamanna. Pað er hin sikileyiska mót-
staða gegn allri yfirdrotnun. Pað er sú bar-
átta, sem myndast við sameiginlega baráttu
gegn yfirráðum. Það er hugsjón, ekki nein
stofnun. Auðvitað vil jeg ekki bera á móti
því, að La Mafia á sína ræningja og stiga-
menn, sem allir bjargálnamenn og höfðingj-
(Framh.).
ar greiða skatt. Svo að jeg segi þjer dæmi
um aðferð þeirra: Allir þeir, sem eiga
ávaxtagarða hjer í nágrenninu eru neyddir
til þess að taka eftirlitsmenn, auk vanalegra
verkamanna. Annars eru þeir rændir. Þessir
eftirlitsmenn eru Mafiosi. Gerum ráð fyrir,
að einhver rísi gegn þessum ákvæðum.
Hvað skeður? Hann missir uppskeru sína
á einni nóttu. Trje hans eru höggvin upp.
Leiti hann verndar hjá lögunum, er hann
skoðaður sem bjálfi og hugleysingi. Petta
er lítið sýnishorn af vinnubrögðum La Mafia.
í raun og veru ræður hún öllu stjórnmála-
lífi, viðskifta- og fjelagslífi. Par sem menn
vita um getuieysi laganna til verndar, verja
allir friðsamir borgarar glæpamennina. Peir
vilja heldur 'sverja rangan eið til þess að
frelsa einn Mafioso en vitna gegn honum
og taka með því á sig geipilega hefnd. Ef
bóndinn heldur áfram að verja sjálfstæði
sitt, er það víst, að hann lifir skamt — eins
og t d. faðir minn. — Pað er óþolandi. —
Til eru auðvitað Capi Mafia-foringjar, sem
skipa fyrir, en þetta er ekki neitt skipulags-
bundið samband.«
»Nú held jeg, að jeg fari að skilja.«
»Faðir minn var ekki nógu sterkur til að
varpa af sjer okinu og þess vegna varð það
bani hans. Jeg var of ungur til þess að