Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Side 27

Nýjar kvöldvökur - 15.05.1928, Side 27
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 57 Hann hneigði höfði. »Og jeg elska enn.« Hún komst öll á loft og brosti svo hlýtt til hans að hann kendi til. »Veit Martel það?« »Nei. Sjáið þjer til. Pað er vonlaust — ómögulegt!« »Pað tekur mig sárt. Pað hlýtur að vera mesti misskilningur. Jeg get alls ekki ímyndað mjer neitt svo hryggilegt.« »Reynið það heldur ekki, í guðs bæn- um!« hrópaði hann óttasleginn yfir því, hversu þau voru komin inn á hála braut; — hjelt hann, að hún mundi giska á sann- ieikann. »Jeg hjelt, að aiiar konur mundu geta elskað yður,« mælti hún efíir dálitla um- hugsun. »Pjer eruð góður, sannur og hug- rakkur!« »Ó, þjer skilningsbesta allra kvenna!« sagði hann og hneigði sig. »Petta etu að- eins nokkrir af bestu hæfileikum mínum.« Honum þótti vænt um, að hún virtist eigi hafa hugmynd um tilfinningar hans. Blake var orðheldinn maður og sagði Martel óskir hennar, en hann ásakaði hann hlægjandi fyrir að trúa eigi röksemdum sjálfs sín. Hann sagði honum Ijómandi af fögn- uði, að farseðlarnir til Messina væru þegar keyptir og þau skyldu fara strax eftir vígsl- una, sem átti að framkvæmast í kirkjunni á Terranova. Hitt hefði sjer aldrei dottið í hug, að fara á mis við hátíðahöldin á morgun, jafnvel þótt Belisario Cardi skyldi koma og reyna að hamla honum frá því. Það væri í fyrsta, eina og síðasta skiftið, sem hann ætlaði að giffa sig og hann vildi njóta þess eftir bestu föngum. Þorpsbúar voru þegar farnir að safnast saman, þegar Martel og vinur hans komu í aðseturshöll Oininieranna aflíðandi miðj- um degi næsta dag. Frændur Marheritu höfðu komið með lestinni frá Messina og biskupinn hafði tilkynt komu sína næsta dag. Bændurnir voru í fyrstu dálítið feimnir, en Martel gekk meðal þeirra og heilsaði þeim gömlu, en bauð þá nýju velkomna, svo að feimnin hvarf og þeir komust í besta skap. Veislan fór hið besta fram. Einungis eyðslusamur, ungur maður, eins og Martel, hefði getað komið henni svo fyrir. En veislufögnuðurinn komst fyrst í algleyming, þegar kveikt var á öllum marglitu ljósun- um, sem hjengu niður úr trjágrejnunum. Pá byrjaði hinn rjetti Sikileyjardans, svo að aug- un geisluðu, kinnarnar roðnuðu og Terra- nova endurómaði af hávaða vínglaðra manna. Pað hafði verið hin besta mafarveisla innan dyra fyrir heldri menn sveitarinnar, en Blake varð feginn, þegar hann slapp frá þeim og út. Pær sálarkvalir, er hann hafði þolað síð- usfu viku, voru að verða óbærilegar, og nú, er hann sá Margheritu Ginini klædda í ný- tísku Parísarkjól, óx óhamingja hans, svo að hann varð feginn að geta komist afsíðis. Hann hitti Ricardo á veggsvölunum og horfði hann á mannfjöldann tortrygnum augum. »Hvers vegna takið þjer eigi þátt í veislu- höldunum?* spurði Blake. Ráðsmaðurinn svaraði stuttur í spuna: »Jeg bíð.« »Eftir hverju?« »Hver veit. Hjer eru ókunnugir menn viðsfaddir.« »Eigið þjer við —«, framkoma Blakes breyttist skyndi'ega — »að hjer geti verið óvinir ?<•< »Sje Cardi einhverstaðar í fjöllunum hjá Martinello, því gæti hann þá eigi eins verið hjer á Terranova? Jeg er að svipast eftir þreknum, dökkhærðum manni. Aliandro hefir lýst honum fyrir mjer.« »Cardi mundi íæplega koma í brúðkaups- veislu,« mælti Biake og fór um hann hrollur. »TæpIega,« mælti ráðsmaðurinn. »Hafið þjer sjeð nokkuð?« »Ekkert.« »Hvar er Ippolito?« P

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.