Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Blaðsíða 7

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Blaðsíða 7
N. Kv. VALGERÐUR 85 „Þetta er víst Brandur," sagði hún góð- látlega. „Ég geri ráð fyrir, að þér þekkið alla, sem voru liér í þorpinu á undan mér, og þá er ég ein aðkomandi, sem allir þekkja. En ég verð að biðja yður að fyrirgefa, hve oft ég hef dvalið hér á heimilinu án þess að leita samþykkis yðar og leyfis. En það hefur heldur ekki verið hægt um vik fyrir ntig, þar sem ég hef ekki hitt yður fyrr en þetta.“ ,,Það er ekkert að fyrirgefa,“ svaraði Brandur. Rödd hans var sterk, en ekki óþýð. „Þér hafið ekki verið neinum hér til meins, og kona mín og dætur halda mikið af yður.“ Hann greip vettlinga sína og gerði sig líklegan til að ganga burt. „Viljið þér unna mér viðtals dálitla stund,“ sagði \7algerður, „eða tef ég yður of mikið?“ „Nei, engan veginn. En ég fer nærri um, hvað þér viljið tala við mig, eftir því sem María hefur sagt mér, hvað þér hafið verið Jóhanni umhyggjusöm. En það er alls ekki af neinum illum hvötum, sem ég hef tekið þessa ákvörðun, og mér þykir fyrir að þurfa að lirekja hann burt, úr því hann langar til að vera kyrr.“ „Þetta er Jóhann búinn að segja mér, og ég hefði nú líka vitað það, hvort sem var, eftir að ég er búin að sjá yður. En nú skul- um við hjálpast að, svo að hægt sé að bæta úr þessu." Brandur hristi höfuðið. „Ég er búinn að hugsa oft um þetta og kemst ekki að ann- arri niðurstöðu. Jóhann er ekki eins þungur ómagi, og hann sýnist, því að hann er nægju- samur og þurftarlítill. En mér finnst það óbærilegt að vita hann svangan og kaldan í mínurn húsurn, ef honum gæti liðið betur annars staðar." Valgerður leit til Jóhanns. Tárin voru aftur farin að seytla niður kinnar hans, en þau höfðu þornað, meðan þau töluðust við. Hún mælti: „Ef þér viljið lofa honum að vera, legg ég honum til 300 krónur árlega, meðan hann þarf þess með.“ Brandur leit á hana forviða og mælti: „Mér lízt s\o á yður, að þér meinið það, sem þér segið; en þetta er of mikið, 100 krónur hefðu verið góður styrkur." \;algerður brosti: „Þér eruð ekki fégjarn maður, þetta er þó ekki ein króna á dag. En er þá dvalarstaður hans tryggður hér með þessu?“ „Já, ftdlkomlega,“ svaraði Brandur. Og lofið mér nú að þakka yður fyrir, að ég neyddist ekki til að hrekja hann burt.“ „Ég skal gefa yður skriflega tryggingu fyrir þessu í kvöld, og eitthvað af peningun- um getið þér fengið, hvenær sem þér vilj- ið,“ sagði Valgerður. Síðan gekk Brandur burt, en liún settist aftur við rúm Jóhanns og tók hönd hans. Hann brosti: „Þú ert mér alltof góð,“ sagði hann, „ertu nú ekki snauð eftir?" „Nei, Jóhann minn. Og ég er miklu glað- ari, en þótt mér hefði verið gefnar þessar krónur.“ „Þá get ég ekki annað en lofað Guð fyrir náð lians að senda mér þig, og má ég svo ekki þakka þér, eins og þú liefðir verið dótt- ir mín?“ Tárin stóðu í augum liennar, er lnin laut að honum og kyssti hann innilega. Hann lét hönd sína líða yl’ir andlit liennar og mælti síðan hrærðum rómi: ,,Ég vissi það alltaf, að þú værir fríð, eins og þú ert góð! Guð blessi þig ævinlega!“ Nú komu systurnar inn, og Valgerður tók nöfnu sína á fang sér og spjallaði síðan við þau dálitla stund, og á meðan kom móð- ir systranna inn. Hún var glöð í bragði og svo gerbreytt frá því, er Valgerður mætti henni á leiðinni, að auðséð var, að hjónin hefðu talazt við. Og þegar Valgerður fór, þakkaði María henni innilega komuna í dag og sagði, að luin liefði létt af sér þung- um steini. Jenssen sat inni í skrifstofu sinni stundu

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.