Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Blaðsíða 18

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Blaðsíða 18
96 ÖÐRUVÍSI EN AÐRAR, OG ÞÓ. . . . N. Kv. hafið það fallegasta hár, sem ég hef séð á ævi minni. Litur þess er alveg einsdæmi. — Já, það veit ég vel. Litur þess hefur valdið mér leiðindum í mörg ár, sagði Gréta lilæjandi. Ég var sem sé kölluð Rauðhetta allan þann tíma, sem ég var í skóla, og það kom fyrir margar nætur, að ég grét mig í svefn vegna þess. — En eftir því sjáið þér vissulega nú, eða er það ekki? — Já, en ég er alltaf kölluð Rauðhetta, sagði Gréta og hló á ný, um leið og hún pjakkaði skíðastöfunum fast í snjóinn til þess að komast hjá augnatilliti hans, sem gerði hana hvort tveggja í senn ringlaða og feimna. Piltar voru ekki vanir að tala þann- ig við hana. Þess konar fagurgala geymdu þeir Mary og stúlkum af hennar gerð, en við Iiana töluðu þeir einungis um skíði og allt sem að skíðakunnáttu laut. Aldrei minntust þeir á háralit hennar. En hvers vegna reidd- ist hún þá ekki núna, varð einungis hálf- ringluð? Fyrir hana, sem ævinlega var vön að sýna drembilæti, var þetta ný og óþekkt kennd, og hún var í vafa um, livort lienni geðjaðist betur eða verr að þessari óvæntu tilfinningu. í úthverfi bæjarins, þar sem lystigarðarnir tóku við, skildust að leiðir þeirra. Gréta fór þá að hugsa um, hvað hann mundi segja að skilnaði; hvort hann mundi mælast til þess, að þau hittust aftur, og hverju liún skildi þá svara. En liann þakkaði lienni þá einungis fyrir samfylgdina, veifaði síðan til hennar með öðrum skíðastafnum og hvarf að því búnu eftir skíðaslóð, sem lá inn á milli tveggja trjágarða. Grétu fannst hún hafa orðið fyrir lítils háttar vonbrigðum, jafnvel þótt hún Iiefði ekki ráðið það við sig að svara því játandi, ef hann hefði spurt hana, hvort hann mætti hitta hana aftur. Þau, sem vissu ekki einu sinni hvors annars nafn. En hann hafði látið þess getið við hana, að hann færi venjulega þarna út í skíðabrekkuna. Skeð gæti þá, að hún hitti hann þar aftur. Og sú tilhugsun olli því, að hjarta hennar fór að slá tíðara. Gréta var í óvenjulega góðu skapi þennan dag, svo að móðir hennar, sem átti ekki slíku að venjast, leit oft undrandi til hennar. Og þegar hún var að máta kjólinn, hjá ungfrú Nyman, sýndi hún svo mikinn áhuga, að saumakonan var alveg steinhissa á því, hversu auðvelt var að gera henni til hæfis þann dag. Eitthvert létt og lifandi efni í sæ- grænum lit, hafði hann sagt, var alltaf í huga Grétu á meðan hún skoðaði sig l’rammi fyrir speglinum. Hvernig mundi honum lítast á hana, ef hann sæi liana í þess- um kjól? Nei, nú hagaði hún sér kjánalega; alveg eins og þessar teprulegu stelpur, sem hugsuðu eingöngu um kjóla, og senr hún fyrirleit. Morguninn eftir, þegar Gréta kom út á skíðabrekkuna þar sem hún var vön að æfa sig, taldi hún sjálfri sér trú um, að hún byggist ekki við að sjá unga manninn, en hún varð samt sem áður mjög vonsvikin, þegar hún komst að raun um, að hann var þar heldur ekki. Hann hafði þó sagt, að hann væri vanur að dvelja þarna úti við skíðabrekkuna, enda hafði hann hitt hana þar. Þennan dag var Gréta í svo leiðu skapi, að foreldrar hennar veittu því sérstaka at- hygli. — Ég hef margsinnis sagt henni, að hún mætti ekki blístra; það væri svo ókvenlegt, sagði frú Bergmann mæðulega. — Það fer svo í taugarnar á mér. I gærdag lá svo vel á henni sem framast gat verið, en í dag liggur svo illa á henni, að ég á engin orð yfir það. Og ef það hefði verið einhser önnur en Gréta mín, hefði ég álitið karhnann vera með í spilinu. Daginn eftir, þegar Gréta kom út að skíðabrekkunni, tók hjarta hennar til að slá örara, þegar hún kom auga á háan mann liæst uppi, þar sem skíðabrekkan byrjaði. Það gat ekki verið annar en hann. Um leið

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.