Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Qupperneq 10

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Qupperneq 10
88 VALGERÐUR N. Kv. þú varst að segja urn mig.“ Hún gekk fast að honum: „Veit pabbi þinn nokkuð? Mér heyrðist þú nefna hann. Og hann var svo þungbúinn, þegar hann konr út frá þér áðan.“ „Ónei, hann veit ekkert og má ekkert vita fyrst um sinn. Allt hefur sinn gang og tíma. En nú verðurðu að lrorga mér það, senr þú heyrðir af eintali nrínu, með reglu- lega góðum kossi!“ Hann gi'eip hana í faðnr sér, og hún rétti fram rjóðar varimar með innilegri blíðu og trúnaðartrausti. I fyrsta sinn á ævinni fann Skúli til sanr- vizkubits: Þetta saklausa barn ætlaði hann ■ að svíkja, og ósjálfrátt hratt lrann henni frá sér. Hún leit á hann hálfforviða. „Það er einhver að koma,“ hvíslaði hann og gekk út að glugganunr, en hún snreygði sér létti- Iega fram fyrir. Þar var enginn maður sjáan- iegur náiægt. A laugardaginn konr snrádrengur nreð bréf til Vaigerðar og sagðist eiga að taka svar við því. Hún lét hann koma inn í her- bergið og las síðan bréfið. Það var frá Jens- sen kaupmanni, og í því bað hann Valgerði að gera sér þá ánægju að koma heinr til sín í kvöld klukkan átta og drekka kaffi með sér og nokkrunr góðvinum sínunr, sem ný- konrnir væru. Þetta væri fyrsta bón sín til liennar, og vonaðist hann til, að hún þekkt- ist hana. Valgerður leit til drengsins. „Eru nokkrir gestir konrnir í kaupmannshúsinu?" spurði hún hann svo. „Já, sýslumannshjónin og sonur þeirra,“ svaraði drengurinn. Valgerður leit aftur á drenginn unr hríð, tók síðan pappírsörk og skrifaði: „Ég nrun koma, láti enginn sjúklingur vitja nrín til næturvöku. — Aíeð þökk og kveðju, Valgerður." Síðan stakk lrún nriðanum í umslag, skrifaði utan á það og fékk síðan drengnum og rétti lionum unr leið epli fyrir ónrakið. Er lrún var ein á ný, velti liún þessu fyrir sér og hugsaði sem svo: „Það býr sennilega eitthvað sérstakt undir þessu heimboði núna, og tæplega getur það staðið í nokkru sambandi við komu sýslumannsins. En það þýðir víst ekki að reyna að ráða þá gátu að svo stöddu,“ og Valgerður tók aftur saum- ana, er hún liafði lagt frá sér. Sýsluinaðurinn og Jenssen sátu í skrif- stofu lians. Þeir liöfðu verið að ræða um verzlunarmál og voru í bezta skapi. Sýslu- maður tók bréf Valgerðar, sem lá upprifið á borðinu, og leit á utanáskriftina. „Ja hérna, vinur minn, ertu þá hér með bréf frá ungri stúlku? Þú ert þó aldrei að hugsa um að skipta á ráðskonu og — eigin- konu?“ Jenssen brosti: „Nei, það er nú langt frá því. En hvernig ferðu að sjá, að bréfið sé frá ungri stúlku?" „Það er nú fljótséð,“ mælti sýslumaður, „og meira að segja get ég sagt þér nokkuð um skaplyndi hennar: Hún hefur nokkuð öra, viðkvænra lund, en járnfastan vilja, svo að hún verður tæplega höfð ofan af því, sem hún ætlar sér.“ „En þú sérð þó vænti ég ekki á skrift- inni, að hún sé kvenna fríðust og vel fjáð?“ spurði Jenssen og glotti íbyggilega. „Nei, nú gerirðu mig forvitinn," mælti sýslumaður, „en mig fer að langa til að sjá og kynnast þessari, sem Jrú ert svona lirif- inn af.“ Jenssen hló borginmannlega: „Innan fárra mínútna mun þér veitast sú ánægja. Hún er nýja hjúkrunarkonan okkar Skaga- búa og kemur hingað í kvöld.“ Sýslumaður néri saman höndum: „Það er fyrirtak," mælti hann. „Hún er máske heit- mey Skúla sonar Jríns?“ „Ekki er það nú ennþá opinberlega. En Jiau eru góðir vinir, svo mikið er víst.“ „Ég gratúlera af heilum hug!“ rnælti sýslumaður. „En nú skulum við fara að

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.