Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Side 12

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Side 12
90 VALGERÐUR N. Kv. Fyrst lék hún stutt lag og afar viðkvæmt, sem enginn þeirra kannaðist við, en síðan „O, fögur er vor fósturjörð" og mörg önn- ur algeng ættjarðarlög. Sungu karlmenn- irnir þau með hljóðfærinu, og Valgerður tók einnig undir eftir fyrstu lögin. Henni fannst hún aftur vera liorfin heim til sjúkra- hussins þar sem liún var síðast, og að þetta væru sjúklingarnir, sem hún nú væri að leika og syngja fyrir, eins og svo oft áður. Hún hrökk því við, er sýslumaður snart við öxl hennar að enduðu einu laginu og sagði, um leið og hann lineigði sig: „Ég þakka yður innilega fyrir, þetta var ágæt skemmtun. lin nú býður fröken Anna okkur hressingu, og því verðum við að sinna.“ Þegar staðið var upp frá kaffiborði, vék Valgerður sér að Jenssen og bað hann af- saka, að nú gæti hún ekki notið gestrisni hans mikið lengur, því að hún vildi vera komin til svefns ekki seinna en klukkan eitt. Jenssen ætlaði að svara henni, en sýslu- mannsfrúin varð fyrri til máls: „Þá vil ég ráða skemmtuninni, það sem eftir er, og koma nú í einn snúning, því að ekki hafði ég gaman að gólinu í ykkur áð- an, þó að frökenin spilaði reyndar fremur vel. Það er nóg pláss hérna í stofunni og sjálfsagt hægt að útvega einhvern músíkant og einar tvær dömur til.“ „Þetta er ágætt, frú mín góð, tók Jenssen undir. „Ég held við maðurinn yðar fylgj- umst enn með, Jregar við viljum það við hafa, að ég tali nú ekki um unga fólkið, sem alltaf finnur fjöri sínu bezta framrás í dansinum." Hann gekk síðan hratt út úr stofunni. Ungu mennirnir fóru nú að færa saman hús- gögnin, en sýslumannshjónin settust í legu- bekkinn og Valgerður skammt frá þeim. Sýslumannsfrúin horfði glottandi á mann sinn: „Ekki veit ég, hvernig þú ferð að því að þekkja alla eignileika ungra stúlkna, þó að þú sjáir þær snöggvast. Hvernig vissirðu til dæmis áðan, að frökenin léki á hljóð- færi?“ „Eins og þú lýsir því, — með því að sjá hana snöggvast; en hvernig veizt þú, að Skúli — sem ég býst við að eigi að verða ballherrann þinn — kunni að dansa?“ „Það er ég eins viss um, og að dagurinn rennur yfir mig á morgun. Ég sé það á aug- unnm, hreyfingunum og göngulaginu.“ „Alveg rétt, og á sama hátt vissi ég, að fröken Valgerður hefði yndi af hljóðfæra- slætti og kynni að spila.“ Ungu mennirnir höfðu nú gengið burt, og voru þau þrjú eftir inni. Valgerður leit alvarlega til sýslumannsins og mælti: „Ég bið ykkur að fyrirgefa, að ég trufla sanxtal ykkar; en ég vildi gjarnan tala við sýslumanninn unr málefni, sem mér liggur sérstaklega á hjarta.“ „Og þá á ég víst að ganga búrt á meðan,“ sagði frúin dálítið þóttaleg og stóð upp. „Þess gerist engin þörf,“ sagði Valgerður, „því hér er ekki um neitt leyndarmál að ræða. Ég vildi aðeins bera það undir álit mannsins yðar, hvort ekki væri sjálfsagt að fá lækni hingað í þorpið." „Já, í hamingjubænum, leyfið mér að \ era laus við að lxlusta á þær umræður,“ sagði frúin og lagði af stað til dyranna. „Gerðu svo vel,“ sagði sýslumaður bros- andi, en sneri sér svo að Valgerði og sagði, að sér Jrætti vænt um, að hún hefði hreyft þessu máli. Fyrir nokkrum árum hefði hann sjálfur borið þetta fram við sveitarmenn hér, en fengið daufar undirtektir. „En síð- an þér komuð hingað, tel ég miklu minni þörf á þessu.“ ('Framhald).

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.