Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Page 14

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Page 14
92 ÖÐRUVÍSI EN AÐRAR, OG ÞÓ. . . . N. Kv. um í eyra henni. Ungu mennirnir voru ein- ungis félagar Grétu, sem virtu hana veg-na íþróttadugnaðar hennar, en að heíja bónorð til hennar, var utan við þeirra hugsanasvið. Og þessi raunalega staðreynd var nú farin að renna upp fyrir frú Bergmann, þess vegna lét lnin sér nægja að hafa orð ;í því við Grétu annað slagið, að hún ætti að liafa meiri áhuga fyrir útliti sínu og búningi. Jafnvel þótt það væri engir ungir menn, sem hefðu í hyggju að biðla til hennar, var þó allur varinn góður, ef svo skyldi til takast, að hún, mót allri von, játaðist einhverjum; þá varð ekki minna af henni krafizt, en að hún tæki tillit til útlits síns og klæðabún- ings. En þannig mundi það áreiðanlega verða, hugsaði frú Bergmann, að Gréta léti gefa sig saman í ráðhúsinu, í skíðafötunum. Gréta hafði látið í ljós þá ósk sína, að hana langaði til að læra einhverja iðngrein, þegar hún yrði laus rir skólanum, en móðir hennar, sem þá var ekki orðin alveg vonlaus um að sjá hana vel gifta, hafði talið það úr. Það, sem Gréta átti að læra, var að búa til mat, sauma föt og gæta ungbarna. Þótt Grétu væri þetta að vísu þvert unr geð, tók hún þó þátt í hússtjórnar- og saumanám- skeiðum, án Jress að hafa nokkurn áhuga fyr- ir því. Það voru nú liðin tvö ár síðan hún lauk stúdentsprófi, og þar sem ekki hafði enn bólað á neinum biðli, og Gréta hélt ennþá áfranr að ánrálga, að hún vildi læra einhverja iðngrein, sanrþykkti móðir lrenn- ar það að lokum. Með haustinu ætlaði Gréta sér að verða híbýlafræðingur, og Jress vegna varð hún að sækja þann skóla, þar sem híbýlaprýði var kennd. En Gréta var alltaf nreð lrugann við íþróttirnar. Að hálfum nránuði liðnum ætlaði hún að taka þátt í stærsta skíðahlaupi ársins, og þar senr hún var bæði viss um að verða öðrunr frenrri, og eins til þess að valda félagsdeild sinni engra vonbrigða, æfði hún sig á hverjum nrorgni. Þessi var orsökin, að Gréta kom oft svo seint til morgunverðar. En hvað hafði Jrað að segja móts við þau líkindi að vinna glæsileg- an sigur í þessu mikla skíðahlaupi, ef hún æfði sig duglega, hugsaði Gréta ókvíð- in. Þau mundu vissulega verða hreykin af henni, ef hún ynni. En annað nrál var það, Jrótt móðir hennar vildi lralda því franr, að hún hefði í þess stað átt að ná tangarhaldi á ókvænta kandidatinum, sem allar mæður í bænum voru á hnotskóg eftir til að ná í fyr- ir tendason. En á því sviði gat lrún ekki teflt ireinu franr, lrugsaði Gréta nreð fyrirlitn- ingu. Allt þess konar lét hún Mary og stöll- unr hennar eftir nreð ánægju. Síðla dags nokkurs, Jregar Gréta var á leið- inni í iðnskólann, hitti hún Mary og móður hennar. Þær gengu lrinum megin götunnar. Gréta ætlaði aðeins að kasta á þær kveðju og ganga svo franr hjá þeim, en þá benti frú Lúndberg lrenni að koma, svo að Gréta varð nauðug viljug að fara yfir um til þeina. Mary var í splunkurnýrri fellingakápu, en Grétu, sem frú Lundberg mældi með aug- unum frá hvirfli til ilja, varð það fullljóst, að sportsbúningur hennar var bæði farinn að láta ásjá og krypplaður. Hún hafði aldrei lagt Jrað í vana sinn að hugsa um jress háttar, en hún skildi Jrað hins vegar mæta vel, að ekkert það, sem var athyglisvert í klæðabún- aði fór fram hjá augunr frú Lundberg. Og í hlífðarlausu, glampandi sólskininu urðu ágallarnir sérstaklega áberandi. — Jæja, Gréta, þú kenrur vitanlega á af- mælisdaginn hennar Mary? Okkur Jrætti svo afarvænt um, að allir kunningjar hennar kæmu. Já, það skil ég nrjög vel, hugsaði Gréta dálítið kímin. Mary átti vitanlega að ganga sigri hrósandi af hólmi nreð sinn síðasta vinning, verkfræðikandidatinn, senr svo nrikið var unr talað. Helzt af öllu vildi lnin hafa sagt nei, en Jrar sem frú Lundberg og móðir hennar voru kunnugar, gerði hún Jrað vegna nróðiir sinnar að svara kurteislega: — Þökk fyrir, vissulega kem ég, svo fram-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.