Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Qupperneq 25

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Qupperneq 25
:n. Kv. BÆKUR 103 Eggert Stefánsson: Lifið og ég II. ísafoldarprentsmiðja. Rvík 1952. Annað bindið af sjálfsævisögu Eggerts Stefánssonar er nýkomið út. Segir hann þar frá heimför sinni frá Ítalíu og dvöl heima í Reykjavík 1920, vetrardvöl í Berlín, söng- sigrum í Reykjavík 1922, ferðalögum á ís- landi og loks Ameríkuför. Ævisaga Eggerts hefur verið kölluð „íslenzkasta bók ársins“, er það rétt að því leyti, að bókin er gegn- sýrð af ást á íslandi og öllu því sem íslenzkt er. Höfundur fyrirgefur það sem miður fer, þótt hann sjái gallana, en er hrifinn af hinu og dáir íslenzka náttúru, svo að fáir hafa bet- ur gert. En á hinu leitinu er ævisaga Egg- ert óíslenzka ævisaga, sem nokkur íslend- ingur hefur skráð. Hvarvetna mætir þar les- andanum maður, sem hefur laugað sig í lindum menningarinnar, sem gefið hefur honum víðari yfirsýn en títt er um landa vora. Yfir hverri síðu bókarinnar leikur suðrænn blær og sólhlýja. Af því þessar and- stæður mætast svo greinilega verður bókin óvenju hugðnæm aflestrar. Og þótt lesanda þyki höf. stundum vera nokkuð uppi í skýj- unum fyrirgefst honum það, og fæstir munu leggja bókina frá sér fyrr en að loknum lestri, og bíða framhaldsins með eftirvænt- ingu. Það er triia mín að ævisaga Eggerts Stefánssonar verði langlíf í íslenzkum bók- menntum. Hún er eitt þeirra ævintýra, senr gerzt hafa með þjóð voni um karlssoninn, sem fór út um lönd, og gæfudísimar leiddu heim í kóngsríki og gáfu honum þar glæstar lendur. Ingólfur Davíðsson: Litmyndir af íslenzkum jurtum. ísafoldar- prentsmiðja. Reykjavík 1952. Fyrsta hefti myndasafns þessa kom út fyr- ir nokkrum árum. í þessu hefti eru 22 lit- myndir algengra íslenzkra plantna. Nú hef- ur verið horfið að því ráði að nota nær ein- göngu teikningar í stað ljósmynda í fyrra heftinu. Er það til stórra bóta, til þess að þekkja plönturnar eftir. Eru myndirnar teknar eftir hinu ágæta riti: Billeder af Nordens Flora, sem er ágætast myndaverk af plöntum, sem út hefur komiðáNorðurlönd- um. Mætti prentun sumra myndanna þó vera betri. Mistök hafa orðið um myndina af þúfusteinsbrjót, sem ekki er af þeirri teg- und, heldur af kornasteinbrjót, sem einung- is hefur fundizt á einum stað hér á landi. Vafasamt er, hvort rétt hefur verið að birta Maríustaksmyndina, Jrar sem hún er ekki af neinni íslenzkri tegund. Stuttir og greina- góðir textar fylgja myndunum. Myndasafn þetta er hinn ágætasti fengur fyrir alla sem unna blómum og gróðri, og mikils virði fyrir skóla og kennslu. Hver skóli ætti að eiga mörg eintök þeirra til afnota við kennslu. Erla Þórdis Jónsdóttir: Bernska í byrjun aldar. Reykjavík 1951. ísafoldarprentsmiðja. Þetta er unglingabók og lýsir lífi og at- höfnum unglinga, einkum í Reykjavík í byrjun þessarar aldar. F.nda þótt söguefni sé ekki stórt né skáldskapur mikill á fæstum, þá er þetta aðlaðandi barnabók, og hefur einkum gildi sakir þess, að þarna er lýst horfinni tíð og háttum, að því er virðist af hófsemi og á réttan hátt. Jack Londin: Óbyggðirnar kalla. Ólafur Friðriksson íslenzkaði. — Isafoldarprentsmiðja. Þetta er saga af gulllandinu Klondike, eins og fleiri sögur höf. En sögulietjan er hundurinn Buk. Frásögnin er lifandi, lýsingarnar á tilfinningum og hátterni hundanna svo sannfærandi, að lesandinn sér þá fyrir sér og fylgist með þeim í þraut- um þeirra, sigrum og ósigrum eins og um inenn væri að ræða. Mun öllum, sem dýrum unna, þykja fengur í þessari bók. St. St.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.