Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Qupperneq 30

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Qupperneq 30
108 SVEINN SKYTTA N. Kv. segi ég, að þér munuð svíkja liann, eins og þér liafið svikið mig.“ Ákafi Sveins hleypti aftur upp í Júlíu og hún svaraði yfiiiætislega og yppti öxlum: ,,() nei, Sveinn Gjönge! Eg hef ekki svik- ið yð’ur, ég sveik aðeins sjálfa mig.“ Að svo mæltu reis Júlía upp frá bekkn- um, hún kvadcli hann með tignarlegum kulda og gekk síðan upp til hallarinnar. Sveinn stóð örlitla stund og starði á eftir henni. Því næst hélt hann af stað heirn á leið. Hann var bæði sorgbitinn og þungt liugs- andi. XXVII. Formœlandinn. Morguninn eftir hittust þeir Sveinn og Ib í kofanum í Ronekleif. Sveinn stóð við gluggann og horfði á trén í skóginum. Ib sat við borðið og hafði breitt út heilmikið af prentuðum blöðum fyrir framan sig á borð- ið. Blöð þessi voru rifin úr bók, og Ib klippti úr þeim ýrnsa stafi, er hann síðan raðaði saman í orð og límdi svo á blað með klístri. Hann liafði sett upp eina af svuntum Önnu Maríu til þess að bletta ekki fallega einkennisbúninginn sinn, sem hann gekk nú stöðugt í. Hvorugur þeirra mælti orð, og þótti Ib þögnin ærið óskemmtileg. Honum varð því oft litið til Sveins, og tók honum þar sárt að verða þess var, hve dapur hann var. Er honum að lokum þótti þögnin óbæri- leg, tíndi hann saman blöð sín, þurrkaði bréf sitt fyrir framan arininn og mælti síð- an: ,, Jæja, þá er ég nú búinn.“ „Hvað ertu að fást við?“ spurði Sveinn. „Ég er að búa til kærustubréf til Ingu minnar, svo að hún muni eftir mér. Viltu kannske heyra, hvað ég hef sett saman hérna?" »J>“ „Ég elska þig svo innilega, elsku góða vina mín. — Þetta ætla ég að senda henni á morgun, og þá verður hún glöð.“ Sveinn svaraði ekki. „Hvar er Anna María í dag?“ spurði Ib. „Hún fór yfir í þorpið í gærkvöldi til að vaka yfir sjúklingi." „Æ, vertu nú ekki svona stúrinn! I.íttu heldur á mig og gleddu þig við fallega eiu- keunisbúninginn minn. Við tveir þurfum ekkert að vera stúrnir.“ „Þú hefur ef til vill rétt að mæla, Ib.“ „Já, er Jtað ekki. Hver er Jiað annars, sem hefur móðgað þig eða sært? Var kannske ekki kóngurinn og hið háa ríkisráð nógu artarlegt við Jrig Jrarna inni í Kaupinhöfn?" „Jú, — langt fram yfir Jrað, sem ég hef verðskuldað." „Er jtá nokkur misklíð milli ykkar Önnu Maríu?“ „Nei.“ „Þá hlýtur það að vera einhver snurða á jjræðinum milli jn'n og hennar þarna uppi,“ sagði Ib og leit á Svein rannsóknaraugum. — „Jæja, það er þá ekki J:>að,“ mælti hann, er Sveinn hristi höfuðið. „O, sei-sei, jú, mágur góður! Nú heldurðu, að Jrér takist að leyna mig sannleikanum, en það dugir nú ekki lengur. Það er skömm fyrir Jrig, að bráðókunnugir skuli bera meira traust til mín en Jdú. Kóngurinn áræddi að gera mig að varðstjóra, en ]>ú áræðir ekki að trúa mér fyrir sorg jtinni, Jjótt mér sé vel kunnugt um hana áður. Nú langaði mig aðeins til að komast að raun um, hve vænt þér þætti um mig, þess vegna ginnti ég þig fyrst ofurlítið áleiðis með allri lagni; en nú ætla ég að segja þér sannleikann, að ég veit miklu meira um þetta en ]i>ú sjálfur." „Það var ekkert smáræði." „Og nei, þú veizt aðeins ofurlítið af Jressu. í gærkvöldi, er ég fann dyr þínar aflæstar, læddist ég upp að höllinni til að afla mér frétta. Inni í garðinum faldi ég mig, og Jrá komu þau frú Elsa Parsberg og glæsiriddar- inn herra Körbitz fram hjá, þar sem ég lá,

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.