Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Side 40

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1952, Side 40
] 18 SVEINN SKYTTA N. Kv. lengið að halda áfram, þótt ekki væri nema eitt misseri enn. Og það get ég svarið við Maríu mey, og livað þeir nú heita allir þess- ir dýrlingar, sem hjálpa hraustum her- manni, að aldrei hef ég fyrirhitt betra fólk og heiðarlegra en liér í Danmörku. Berðist ég á Spáni, þá vörðust þeir eins og brjálaðir menn, börðust við okkur á daginn og myrtu okkur á nóttunum. Og í Ítalíu drukkum við dauðann í eitruðum vínum þeirra. Og væri barizt í fátækunr löndum og vistasnauðum, áttum við hungur og alls kyns eymd við að stríða, unz helmingur okkar manna var dauður úr hungri.“ „Æ!“ sagði Ib, „hvers vegna dó þá ekki hinn helmingurinn líka úr sulti?" „Þeir dóu úr Jrorsta, lagsmaður góður! En í þessu landi líður manni eins og í himna- ríki, meðal eintómra góðra og guðhræddra sálna. Hér berjast þeir ekki og verja sig ekki heldur, leggja aðeins á flótta, óðar er við komurn, en eru alltaf svo hugulsamir að skilja eftir handa okkur fullar kistur og handraða af margvíslegu verðmæti.“ „Hvar hafið þér lierjað í dag?“ spurði Sveinn. „Æ já, þessum degi gleymi ég aldrei,“ sagði riddarinn. „Þegar ég kem einhvern tíma lieim aftur, ætla ég að skera svo djúpt nterki í bitann í stofunni minni, að það sjá- ist Jrvert í gegnum hann! Við fórum með hestana okkar inn í baðstofugöng bóndans, drógum rit kommóðuskúffurnar og gáfum hestunum hafra í þær, og síðan völdurn við okkur beztu kindina, drukkum mjöðinn og helltum niður því, sem við gátum ekki torg- að. Og er bóndinn tók að lokum að kvaka eitthvað, bundum við hann við stofuofninn, afklæddum liann, og einn okkar lumbraði á lionum með sverðslsíðrunum, og hinir neyddu liann til að syngja, meðan á hýðing- unni stóð: Gebe Gott, dass es immer, es immer so vare! Maðurinn grét og scing í einu, og á meðan tók hver okkar Jrað, sem hann lysti. Já, ham- ingjan góða! Ég segi bara það, grátklökkur af gleði, að annan eins gleðidag hef ég aldrei upplifað á allri minni ævi. Og verndarengill minn má gjarnan breyta mér í stórhveli, ef honum svo sýnist, sé þetta ekki satt.“ „Hvers vegna einmitt í stórhveli?" spurði Ib. „Jú, því að þá tæki ég ungfrúna litlu Jrarna á bak mér og synti burt nteð liana,“ sagði riddarinn og kinkaði kolli til Karenar. „En þér hafið rétt að mæla, Jress vegna þarf ég ekki endilega að verða stórhveli. Þið, sómafólkið, lofið mér væntanlega að taka hana með mér með góðu. Hún á líka að vera herfang mitt.“ Sveinn leit til Karenar. Hún var orðin föl í andliti og ótti í svip hennar, en Jrað glaðn- aði óðar yfir Iienní, er hún horfðist í augu \ið Svein. Það var auðséð, að luin treysti honum fyllilega. „Hrin má jafnvel búast við að fá að fara heim með mér og verða sarna sem konan mín, þegar við höldum á brott héðan.“ „Jæja, það er nú undir atvikum komið,“ sagði Sveinn. „Hvaða atvikum?“ „Hvort Jrér fáið leyfi til að fara burt með hana.“ „Hvað áttu við, lagsmaður!" sagði ridd- arinn steinhissa. „Hver svo sem ætti að banna Jrað? Eruð þér kannske bróðir litlu stúlkunnar?" „Hún er dóttir mín!“ sagði Elsebeth í borginmannlegum yfirlætistón, er að henn- ar hyggju átti að birta greinilega, hvílíkt feikna djúp væri staðfest þess á milli að vera systir Sveins og dóttir hennar. „Æ, ég Jrykist skilja, gamla frú! Hann er þá maðurinn yðar.“ Erú Elsebeth var eldrauð í framan af móðguri og bræði, er hún svaraði: „Ég er frú Elsebeth Buchwald á Höf- dingsgaard, hefðarkona af æðsta aðli, en þessi maður er ánauðugur."

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.