Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Side 29
Líkan af Queen Mary
í tilraunabrunní
innainlands eða smíðuð hafa verið að nýju hér í
landinu. Það er skoðun margra, að af þeim sök-
um höfum við beðið ekki svo lítið tjón.
Hér getur verið mikið í húfi fyrir þjóðfélagið.
Við megum þvá ekki láta neitt ógert af því, sem
við gætum gert til að fyrirbyggja mistök, er geta
valdið tjóni á mönnum og verðmætum.
William Froude hét sá, er fyrstur kom fram
með hugmynd um það, að byggja sérstakar rann-
sóknastöðvar til að rannsaka allt viðvíkjandi út-
búnaði skipa. Það var 1870, sem brezka flöta-
málaráðuneytið tók fyrst til greina uppástungu
hans um að láta fyrst fara fram nákvæma rann-
sókn á smækkuðu formi af skipum þeim, er ráð-
gert væri að byggja, og gera það í þar til gerðum
brunnum. Síðan hafa miklar framfarir orðið á
þessu sviði, og nú má svo heita, að ekki sé hafin
smíði á neinu skipi, sem vel á að vanda, að ekki
hafi áður verið gerðar nákvæmar tilraunir með
rétta eftirlí'kingu af skipinu, og lag skipsins og
útbúnaður þess byggður á þeim rannsóknum.
Sl'íkir rannsóknabrunnar líkjast mest venjuleg-
um sundlaugum. Rannsóknabrunnarnir á bökkum
Clyde árinnar, þar sem reynd voru lókönin af
brezku risaskipunum Queen Mary og Queen
EliSabet, eru 400 fet á lengd og 20 fet á breidd.
Brú liggur yfir brunninn, og hvíla endar henn-
ar á sporbráutum, er liggja meðfram hliðum
brunnsins báðum megin. Brú þessari er hægt að
hleypa eftir teinunum, og er hún þá knúin áfram
með rafmagni. í sambandi við brúna eru margvís-
leg og nákvæm mælitæki, en við þau eru líkönin
tengd, en brúin er Mtin draga þau eftir vatninu.
Ganghraða brúarinnar er hægt að ráða eftir vild.
V’íðátta brunnsins og dýpt er höfð þannig, að
hvorki botn né hliðar brunnsins hafa áhrif á lík-
önin þegar þau eru dregin, né þær mæiingar,
sem gerðar eru um leið.
Froude grundvallaði sérstaka formulu til að
sýna hraðahlutföllin milli skipsins og líkansins af
því. Það er því tiltöluiega auðvelt, þegar búið er
að velja hina hlutfailslegu stærð líkansins, að
ákveða með hvaða hraða það skuh dregið í
brunninum, til að framkalla hin sömu fyrirbrigði,
og búist er við að skipið mæti í sinni endanlegu
stærð, þegar út á hafið kemur.
Til að byrja með eru þessi tilraunalí'kön dregin
berstrípuð í brunninum, þannig að kjölur og stýri
og annað, sem út af þeim stendur, er ekki haft
áfast, heldur er því bætt við þegar lengra ]íður á
rannsóknina, til þess að hægt sé að rannsaka,
hvaða áhrif þessir útlknir skipsins hafa á ferð
þess og sjóhæfni, og hvað mikinn vélakraft þurfi
til að skipið nái ákveðnum hraða.
Það er ekki einungis, að þessi rannsókn fari
fram á þeim hlutum skipsins, er í sjó eiga að
liggja, og þim tækjum, er eiga að stjóma skipinu
og reka það áfram í sjónum, heldur eru og einnig
Mtnar fara fram nákvæmar rannsóknir á ytra
byrðingnum og yfirbyggingum með tilliti til jafn-
vægis og áníðslu af veðrum og vindi.
Það er augljóst að slíkar tilraunir opna marga
möguleika og skapa tilbreytingar og umbætur,
þar sem grundvaharatriði rannsóknanna eru
fólgin í sífelldum framförum stig af stigi, til meiri
fullkomnunar í gerð og lögun. Þá er það ekki
síður bersýnilegt, að svo nákvæmar fyrirfram-
gerðar athuganir eiga að koma í veg fyrir ýmsa
ágaha og missmíði, sem annars væri erfitt að
girða fyrir.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 9