Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Qupperneq 30

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Qupperneq 30
Hallgrímur fónsson: Ný menningarstofnun Eitt greinilegasta viðreisnarmerkið með ís- lenzku þjóðinni er það, að sýnileg peningaverð- mæti safnast nú fyrir í landinu með ári hverju. Aður var slíku naumast til að dreifa. Þegar frá eru skilin gömul skjöl og skrifaðar bækur, er næsta snautt um raunhæf verðmæti eftir allar aldimar, sem þjóðin hefur búið í þessu landi. Og vitað er að landið hefur sjálft versnað með ári hverju fram til allra síðustu tíma. Það hefur eyðst af vatnsgangi og veðrum, blásið upp. Senni- lega er vafasamt hvort ræktunarumbætur síðustu ára vega nema að nokkru leyti á móti þessari náttúrueyðingu, sem svo erfitt er að hamla á móti. En friðunar- og græðsluframkvæmdir eru nú hafnar í allstórum stíl og varanleg viðreisnar- merki munu víða auðsæ. Kalsár landsins eru tekin að gróa og arður moldarinnar að aukast. A öðrum sviðum eru viðreisnarmerkin enn auðsærri. Merkilegum og varanlegum menningar- setrum fjölgar ört bæði í bæjum og úti í byggð- um landsins. Brýr, sem endast munu marga mannsaldra, eru byggðar árlega og vegakerfið stækkar. Orkuver, sem vinna ljós, yl og orku úr straumvötnum landsins fjölgar einnig, en straum- vötnin eru, sem kunnugt er, okkar „eilífðarvél- ar“, sem enginn fær með réttu frá okkur tekið. En miklu merkust er þó jarðhitavirkjunin, sem hafin er í stórum stíl. Þá hefur mörgum og myndarlegum sjóðum verið safnað síðustu áratugina, sem eiga að koma upp eða standa undir fyrirfram ákveðnum menn- ingarframkvæmdum, þegar tímar líða. Allt er þetta arður af striti íslenzkra manna og kvenna. A niðurlægingartímum þjóðarinnar var þessum arði sópað út úr landinu, einkum gegnum verzl- unina, og var því ekki von að vel færi. Eitt er þó einna mikilsverðast í þessu. Þjóð- inni sem heild, eða öllum fjöldanum, er farið að skiljast hvemig fjármunum er bezt varið. Hvern- ig bezt nýtast til menningarframkvæmda þeir af- gangsaurar, sem ýmsum faha í skaut. Umhyggjan fyrir vaxandi viðreisn, fyrir bættri líðan kom- andi kynslóða er orðin svo mörgum áhugamál. Á það benda meðal annars hin rausnarlegu fram- lög og minningargjafir til „Dvalarheimilis fyrir aldraða sjómenn“, sem birt er í blaðinu hér á eftir. Það eru ekki nema fá ár síðan forgöngumenn Sjómannadagsins hér í Reykjavík fóru að beita sér fyrir fjársöfnun til áðurnefnds fyrirtækis, en það er sýnilega að verða mjög aðkallandi í höfuð- staðnum. Tekjur af hátíðahöldum sjómanna í Reykjavík þennan dag renna óskiptar í sjóðinn. En eins og geta má nærri mundi það fé hrökkva skammt til hinna fyrirhuguðu framkvæmda. Sjómannadags- ráðið hóf því fjársöfnun, einkum meðal sjómanna og útvegsmanna. Tókst þessi söfnun svo vel, að jafnvel yfirsteig vonir forgöngumannanna. Og síðan hafa byggingarsjóðnum borizt margar stór- rausnarlegar mmningargjafir. Sýnir þetta eins vel og bezt má verða hinn ríkjandi anda. Hér er þá aftur ein sönnun fyrir viðreisnarvilja íslenzku þjóðarinnar, því áformað er með þessu fé að græða enn einn kalblettinn á menningarlífi ís- lendinga. Með þessari fjársöfnun er lagður homsteinn að nýju menningarfyrirtæki fyrir ókomna tím- ann. Fólk, sem nú lifir og vill heiðra minningu látinna vina eða vandamanna með því að senda þessum sjóði minningargjafir um þá, eða arfleiðir sjóðinn að fjármunum eftir sinn dag, gerir tvennt í senn: Það leggur stein í byggingu framtíðar- fyrirtækis, sem verður óefað talið stórt skref í menningarátt, er það rís af grunni. í annan stað er þetta ein ákjósanlegasta leiðin til þess að geyma nöfn látinna manna í heiðri meðal kom- andi kynslóða. Dvalarheimilið mun halda skrá yfir alla styrktarmenn sína, sem geymd verður á öruggum stað. Auk þess sem nöfn verða skráð 10 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.