Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Page 41

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Page 41
Friður Þegar blaðið var að verða fullprentað, kom fregnin um það, að vopnaviðskiptum í hinum ægilega hildarleik í Evrópu væri lokið. En er nokkur raunverulegur friður kominn þrátt fyrir það? Friður á jörðu hefur jafnan verið hið æðsta takmark allra tíma. En stöndum vér nú nokkuð nær því marki en áður? Fyrir 27 árum fögnuðu menn einnig friði. Sömu aðilar fögnuðu þá sigri. En sá sigur breytti engu eða skar ekki úr um neitt, sem leitt gæti til meiri velfarnaðar manna eða þjóða. Miklu fremur er ástæða til að halda að hann hafi beinlínis orðið spíra að þeim skelfi- lega ófriði, sem nú er aflétt. Væri það ekki óbærileg tilhugsun, ef eins ætti að fara nú? Og sannleikurinn er sá, að á því er mikil hætta, ef ekki verður algerlega söðlað yfir um hvað snertir hugsanagang alls þorra manna. í farvegi hins ofstækisfulla hatursáróðurs verður að veita straumum umburðarlyndis og fyrirgefningar. í stað grimmdaræðis og djöfuls- skapar verður að rísa almenn mannúðar- og um- bóta alda. Þeir, sem staðið hafa framarlega í sjálfri vopnabaráttunni eru varla líklegir til þeirrar forustu. Þar verða að koma til aðrir hæfi- leikar og allt önnur þjálfun en nauðsynleg er til að heyja stríð. Þar sem friður og réttlæti á að ríkja eru ekki til neinir sigurvegarar og heldur ekki neinir sigraðir. Aðeins þau viðhorf, er menn hverfa frá villu síns vegar. Það er ekki nema eðlilegt, og að því liggja margar orsakir, að bæði þjóðir og einstaklingar séu hlutlausir í ófriði, en í baráttunni fyrir frið- inum á enginn og má enginn vera hlutlaus. Þar á það við og hvergi annars staðar, að sá, sem ekki er með oss, harm er ó móti oss. Islendingar hafa verið hlutlausir í þessum ó- friði, en í baráttunni fyrir friðinum, sem ó eftir honum kemur, meiga þeir ekki vera hlutlausir. Endurminningin um hina mörgu og mannvæn- legu syni þjóðarinnar er fallið hafa af völdum styrjaldarinnar, á að vera oss hvatning til að hefja friðarins merki þannig, að landinu og lands- mönnum sjálfum verði sómi að. sennilega komizt örugglega frá landi. Engin ákæra kom fram á hendur dráttarbátumim. „Það var ekki hægt að sýkna skipstjórann á Craigburn af ákærunni fyrir að neita aðstoð dráttarbátanna,“ sagði dómsforsetinn. „Honum bar þegar í stað að taka hvaða tilboði, sem bauðst til að koma skipi sínu burtu af hinum hættulega stað, sem það var statt á.“ Afsökun Kerr skipstjóra, sú, að hann treysti því að skipið myndi afbera veðrið, jafnvel eftir að það hafði neyðst til að leggjast fyrir akkeri, var ekki tekin til greina. Sakamálsrannsókn var síðan hafin til þess að rannsaka ákærur á hendur Kerr skipstjóra fyrir vanrækslu og drykkjuskap. Báðar ákærurnar sönmuðust, og var hann sviftur skipstjóraréttind- um. Einnig varð hann að greiða allan málskostn- að vegna rannsóknarinnar. Hins vegar var hann ekki álitinn ábyrgur vegna mannslífa þeirra, sem fórust. Rétturinn leit svo á, að þeir, sem fóru í bátinn og síðar drukkn- uðu, hafi ekki aðeins gert það af frjálsum vilja, heldur beinlínis móti ráðleggingum Kerr, því að hann reyndi hvað eftir annað að telja þá á að dvelja í skipinu þar til birti. Er þetta eina atriðið, sem rétturinn hafði ekkert að athuga við í máli skipstjórans. Ahöfn björgunarskipsins sætti allmikilli gagn- rýni fyrir það, að hafa haldið kyrru fyrir innan við Höfðana, í stað þess að fara á strandstaðinn. Hún afsakaði sig með því, að hún hefði ekki fengið nógu glöggar upplýsingar frá merkjastöð- inni í landi um hvernig ástatt var hjá Craigburn. Þeir á merkjastöðdnni brugðust reiðir við og mótmæltu þessari ásökun. Rannsókn fór fram út af þessum ágreiningi, en engin niðurstaða fékkst í málinu, því að hver bar af sér, en ásakaði annan. I ávarpi, sem einn af dómurimum flutti við lok réttarins, komst hann þannig að orði: „Enginn, sem kynnzt hefur málsskjölunum hér fyrir réttinum, mun gleyma hinum óvanalega og sorglega aðdraganda þessa slyss, sérstaklega vegna þess, hve auðvelt var að afstýra því.“ SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 21

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.