Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Page 48

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Page 48
Friðrik Halldórsson um að hann hafði áhuga fyrir því að þýða fleiri bækur, sem bæði vonu til fróðleiks og skemmt- unar og þá sérstaklega er snertu líf og baráttu sjómanna. Hefði honum enzt aldur, mátti vænta frá hans hendi fræðandi og örvandi greina, jafn- vel stærri ritverka um líf og baráttu íslenzkra sjómanna á síðari tímucm. Hann brann af áhuga fyrir því að verða að liði á þessu sviði, — því þau eru svo nauða fá skáldin okkar, sem kunna að lýsa sjómannalífi, það er helzt hann Guðm. Hagalín, sagði hann eitt sinn við mig, er við ræddum um þesis mál. Friðrik var maður hins nýja tíma, glöggur á menn og málefni, skýr í hugsun með Ijósa dómgreind. Hann studdi af einlægni félagsmálahyggju þeirra tíma, er hann lifði og studdi þá menn, er fyrir henni börðust. Ofgastefnum og einræðis var hann andvígur. Hann var maður lýðræðisins í orðum og athöfn- um og trúði á rétt og þroska hins stritandi manns til þess að verða herra hinna tímanlegu gæða. Með Friðrik Halldórssyni er horfinn einn þeirra 28 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ manna, sem líklegastur var til þess að nota penn- ann sem málsvari hinnar íslenzku sjómannastétt- ar á næstu árum, ef hans hefði notið við. Að honum er sjónarsviptir og skarð fyrir skildi. — „f>eir, sem guðirnir elska, deyja ungir,“ segir fornt spakmæli. Um riðrik rnátti segja það. Hann átti marga vini en enga óvini eða öfundarmenn, og virtur og metinn að verðleikum af þeim, sem þekktu hann bezt. Fráðrik var fæddur 19. marz 190 í Hafnarfirði, sonur Halldórs Friðrikssonar skipstjóra og konu hans, Önnu Erlendsdóttur. Var Friðrik 4. barn af 6 þeirra hjóna. Halldór er Breiðfirðingur að ætt og uppruna, en kunnur skipstjóri hér syðra á þilskipaöldinni, en kona hans Anna er sunn- lenzkrar ættar. Friðrik kvæntist árið 1936 Helgu Stefánsdóttur, ættaðri úr Húnavatnssýslu. Eign- uðust þau 3 dætur. Um líf og starf hans er áður getið. Við andlát hans kom ljóslega fram hve mætan mann var verið að kveðja. Stéttrbræður hans loftskeytamennimir kostuðu útför hans og gerðu hana á mjög veglegan hátt. Minningar- gjafir streymdu til Slysavarnafélagsins hvaðan- æva og til ekkju hans. Slysavamafélag Islands stofnaði sjóð til minningar um hann, og sé hon- um varið til björgunarverðlauna. Sýnir þetta og sannar, að vinsæll og góður maður var kvaddur. Minning hans lifi. Sigurjón A. Ólafsson. Ólíkt höfumst við að Um leið og Danir fögnuðu frelsi sínu undan áþján og kúgun, skeði sá hörmulegi atburður, að nokkrir ofsætkisfullir „frelsissinnar“ í Kaup- mannahöfn drápu einn af mikilhæfustu íslenzku rithöfundunum, Guðmund Kamban, án dóms og laga. Á sama tíma hefir íslenzku landsstjóminni þóknast að náða danska landráðamanninn Gott- fredsen, er mest hefir svívirt Islendinga og þá sérstaklega íslenzka sjómenn.

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.