Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Qupperneq 47
Fulltrúi ríkisstjórnarinnar dr. Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra.
sjómannadagsins. Helga Guðlaugs-
syni sjómanni og Jóhannesi S. Sig-
urbjörnssyni skipstjóra, en báðir
hinna síðasttöldu eru starfandi á
skipum Hafrannsóknastofnunar-
innar.
Þá hlaut Guðmundur G. Hagalín
rithöfundur gullkross Sjómanna-
dagsins, en það er sá sjöundi í röð-
inni sem hefur hlotnast þessi heiður
frá upphafi Sjómannadagsins.
Loks afhenti form. sjómanna-
dagsráðs Tómasi R. Hannessyni
Fjalarbikarinn svonefnda, sem
veittur er þeim nemanda í Vélskól-
anum sem bestan árangur hlýtur í
prófi í vélfræði á 3ja stigi.
Afreksverðlaunabikarinn var ekki
afhentur að þessu sinni.
Að loknum ræðuhöldum og
heiðrunum hófst kappróður, sigl-
ingakeppni og koddaslagur. f kapp-
róðri tóku þátt fO sveitir, þar af ein
kvennasveit.
Af sjómannasveitum varð róðra-
sveit af m.b. Stíganda RE — hlut-
skörpust og réri 400 m. vegalengd á
1:41,8 mín. en tækjamenn Eimskips
voru fræknastir af landsveitum og
réru fyrrgreinda vegal. á 1:46,1 mín.
Mikið fjölmenni var í Nauthóls-
vík á meðan hátíðahöldin fóru
fram. Má segja að langt hafi verið
síðan jafnmargir sjómenn voru
saman komnir í landi á þessum degi
a.m.k., hér í Reykjavík, enda stóð
yfir verkfall á hinum stærri togur-
um. Á hátíðasvæðinu fór fram
veitingasala að vanda og önnuðust
kvenfélagskonur sjómannskvenna
sölu veitinganna, en allur ágóði
veitingasölunnar rann til barna-
heimilis Sjómannadagsins að
Hrauni í Grímsnesi. Þá var gamall
háttur upphafinn á ný varðandi
veðbanka í sambandi við kapp-
róðurinn. Það vakti ánægju for-
svarsmanna sjómannadagsins hve
þessi frumraun veðbankans vakti
mikla athygli og jók áhuga hátíðar-
gesta á kappróðrinum.
Að venju var haldið hóf að Hótel
Sögu um kvöldið og var þar glatt á
hjalla.
Sjómannadagsblaðið kom út að
vanda, og var selt ásamt merki
dagsins um land allt.
39. sjómanna
dagurinn
13. júní
1976
★
Sjómannadagsblaðið
Lltyefandi:
SJÓMANNADAGSRÁÐ
RitstJ. og ábyrgðarm.:
Guðm. H. Oddsson.
Jónas Guðmundsson
Rltnefnd:
Guðlaugur Gíslason, Júlíus Kr. Olafsson,
Guðm. H. Oddsson.
Setning og umbrot:
Prentstofa G. Benediktssonar
Prentun og bókband:
isafoldarprentsmiðja
Pétur Sigurðsson, alþingismaður formaður sjómannadagsráðs heilsar forseta ís-
lands, dr. Kristjáni Eldjárn við dyr Dómkirkjunnar í Reykjavík.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 39