Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Síða 113
SVFÍ var hann allra manna kunnug-
astur öllu sem viðvék björgunarbátum
erlendis og skipti liðsinni hans megin-
tnáli. Fyrir okkar orð kannaði hann
þetta og komst að því að bátur var að
losna í Cuxhaven í Þýskalandi. Er ekki
að orðlengja það að SVFI var boðinn
báturinn og fögnuðu menn því auð-
vitað mjög. Miklu skipti að við
fengum bátinn á einstökum kjörum:
Aðeins málamyndaverð var greitt íyrir
hann, eða ein milljón króna - og ekki
var nóg með að við fengjum bátinn,
heldur íylgdi honum mjög mikið af
varahlutum - þar á meðal ný vél.“
Aðstæður réðu úrslitum um
staðsetninguna
»Senn var tekið að ræða væntanlega
staðsetningu bátsins, því ekki var
sjálfgefið að hann kæmi hingað til
Sandgerðis, þar sem víðar er góðra
björgunarbáta þörf. Björgunarbáta,
þótt þeir væru ófullkomnari, var þá að
finna hér í Sandgerði, í Reykjavík og í
Hafnarfirði, auk þess sem þyrlur eru
staðsettar á svæðinu. Hlutu því veru-
legar umræður að verða um staðsetn-
'riguna í stjórn SVFI. Kannaðar voru
skýrslur um fjölda sjóslysa hér og þar á
Hndinu og leitað álits aðila sem höfðu
skoðað þessi mál. Kom þá í ljós - sem
tnargir þóttust vita - að hér var versta
eða hættumesta svæðið, enda mest
skipaumferð hér á illviðrasamasta
filuta ársins. Því varð það úr að
ákveðið var að staðsetja bátinn hér - og
kom hann til Sandgerðis 3. apríl
I993 “
52 vatnsþétt hólf
»Björgunarbáturinn Hannes Þ.
Hafstein er smíðaður 1965, en er
aft>urðaskip - til dæmis er sama
skrokklag notað við smíði nýrra
Björgunarbáta enn. Svo gefm sé
tokkur lýsing á honum þá er hann
^6.6 lestir að stærð og 26.6 metrar að
^er>gd. Svo við víkjum að fleiri tækni-
„Siggi Guðjóns. “ Bátinn má sjósetja á aðeins
einni mínútu, enda handtök áhafnarinnar
snör.
legum atriðum er skylt að geta um að
honum er skipt niður í 52 vatnsþétt
hólf og eru því allar síður tvöfaldar,
þótt að vísu séu olíutankar í hluta af
þeim. En aðallega eru þetta lofttankar
og í botninum eru lofttankar einnig.
Er því ljóst að nokkuð má ganga á
áður en báturinn sekkur! Þess eru líka
dæmi erlendis að bátar af þessu tagi
hafi farið heila veltu en flotið eftir sem
áður.
Báturinn er búinn þrem díeselvélum
af gerðinni Maybach/Merceses Benz
sem samtals eru 2400 hestöfl. Tvær
þeirra eru 525 hestöfl hvor og eru þær
keyrðar að öllu jöfnu, en þriðja vélin
er 1350 hestöfl. Hún er gangsett þegar
mikið liggur við. Mest höfum við náð
20 mílna ferð, en á reynslusiglingunni
er báturinn sagður hafa náð 24.6
mílum. Gífurlegt öryggi er í því fólgið
að hafa slíkan vélakost, því þótt ein
vélin bili er nóg afl eftir samt. Þá er
hagkvæmni í því fólgin að vanalega er
aðeins keyrt á tveimur minni vélunum
eins og við gátum um. A bátnum eru
líka þrjár skrúfur og þrjú stýrisblöð.
Skrúfurnar geta unnið hver á móti
annarri sem veldur því að báturinn er
mjög lipur og snöggur í hreyfingum.
Um siglingabúnað er það að segja að
hér um borð er lítil millibylgjustöð,
fjórar VHF stöðvar og VHF mið-
unarstöð. Enn fremur erum við með
Maxi-siglingatölvu sem við settum í
bátinn þegar hann kom, svo og nýjan
72 mílna radar af Koden-gerð.
Sjálfstýring er auðvitað í bátnum og
tvö GBS-staðsetningartæki með leið-
réttingu. Bátnum má stjórna jafnt úr
efri sem neðri brú, þótt vissulega sé
honum oftast stjórnað úr efri brúnni
þar sem betur sést yfir.“
Sjósetning á einni mínútu
„Enn er ótalið eitt veigamesta atriðið,
en það er að við höfum um borð
lítinn björgunarvélbát sem aðeins
tekur eina mínútu að sjósetja. Hann er
mjög hagkvæmur, bæði þegar sigla
þarf grunnt eða fara í land og til þess
að fara í milli skipa. í honum er 100
hestafla vél og nær hann 10-12 mílna
ferð og hentar meðal annars vel til að
draga minni báta. Hann er búinn
L
Hannes Þ. Hafstein á fullri ferð. í reynslusiglingunni náði hann 24.6 mílum. (Ljósm.
Sigurvon)
S]ÓM AN N A DAGSBLA ÐID
113