Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1924, Blaðsíða 12

Eimreiðin - 01.04.1924, Blaðsíða 12
140 EINAR BENEDIKTSSON eimreiðin Hugann grunar, hjartað finnur lögin. Heilinn greinir skemra en nemur taugin. Heimsins vél er hnúð af eínu afli, einum segulvilja er kerfin bindur. Sama vald er veldur sólnatafli veitir sér í gegnum mannsins æðar. Milli lægsta djúps og hæstu hæðar heimssál ein af þáttum strengi vindur. Söguborg, með kaldra múra minning merkt af hruni og reisn, af tjóni og vinning, goð þín, rústir, hof og styttur hverfa, hjaðna eins og bólstrar skýaeimsins. Þú varðst til svo eilífð mætti erfa anda þann, er beindi þínu stáli, stýrði þínu afli í mynd og máli, meitlaði þinn svip í ásýnd heimsins. Mást skal lína og litur, steinn skal eyðast, listarneistinn í þeim skal ei deyðast. Perlan ódauðlega í hugans hafi hefjast skal af rústum þjóða og landa. Komi hel og kasti mold og grafi, kvistjst lífsins tré á dauðans arin, sökkvi jarðar knör í myrkva marinn — myndasmíðar andans skulu standa. Ég hef rakið þetta kvæði næstum í heild vegna þess, hve Ijóslega það sýnir stíl og snið ljóða Einars Benediktssonar. Dýptin — hæðin, hið hafna rúm: djúpúðin, frumkend nor- rænnar (germanskrar) listmentar, ræður Jrér bæði formi °9 viðhorfi. Hér er vant að segja hvort stórfenglegra sé: djúp og þrek hugsunarinnar eða formgáfa og orðspeki. Hér er saga Rómaveldis líklega betur sögð í sex vísum heldur en i nokkrum sex bindum, sem um það hafa verið rituð, og pantheiskt — lífshorf hvergi sett fram á íslenska tungu ne nokkra tungu aðra jafn-gagnort eða í listbornara formi. Þetta kvæði er líkt sýn, er víkur undan augum eftir hvolfgöngum, er hækka og breikka því fjær sem dregur, dýpkar og skýrist, ummyndast í hreinna, hreinna ljósi. Lítil athugun opnar útsýn, sem ekki á nein takmörk. Djúpúðin er líka heildareinkunn þroskasögu skáldsins, sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.