Eimreiðin - 01.04.1924, Blaðsíða 46
EIMRE!D'n
Fegurstu staðirnir.
A Ihing of beauty is a joy for ever.
John Keats: Endymion.
Nú er sumarið komið og útþráin vöknuð. Sveifirnar eru að
klæðast skrúði sínu, farfuglarnir hafa snúið hingað norður a
gamlar slóðir, og alt, sem lífsanda dregur, þenur brjóstin rnót
bláum himni og vermandi sól. Júlí- og ágústmánuðir eru
sann-nefndir útfaramánuðir, ekki af því að dauðsföll og þar af
leiðandi jarðarfarir séu tíðari þá en aðra mánuði ársins, held-
ur af því, að þá fara allir, sem á annað borð mega um frjást
höfuð strjúka, eitthvað út um sveitir landsins, út um voga>
völl og tún, hraun, heiðar, hálsa, mela og móa, fjöll og firn'
indi, — eifthvað út í buskann, til þess að njóta sumarsins og
þeirrar fegurðar, sem landið hefur að bjóða. Næstu fjórar til
sex vikurnar streyma kaupstaðarbúar hópum saman upp 1
sveit, og þá ekki síst höfuðstaðarbúar. Þeir, sem eru svo o-
hamingjusamir að geta ekkert lyft sér upp, verða að láta sef
nægja að taka í huganum þátt í gleði hinna hamingjusömu
og fylgja þeim í anda á fegurstu staðina. Mun þó ekki laust
við, að sumir þeir, er heima sitja, ^ finni til öfundar, er þeir
sjá á eftir ferðafólkinu, ýmist fótgangandi, hjólandi eða þeys*
andi í bifreiðum eða á hestum. Og er það mannlegt.
Tvent ólíkt er að ferðast um landið að sumarlagi og ge*a
notið alls þess, sem fegurst er og auðugast í íslenskri náttúrUr
og að standa t. d. dag eftir dag alt sumarið í búð, við fisk'
körin eða sitja á skrifstofu. En þegar vér höfum ekki ráð a
sumarfríi, er eina leiðin að lofa hugunum að fara í sumarferð
fyrir oss. Það er hvorki kostnaðarsamt né tímafrekt.
Nú gæti vel verið, að lýsingar annara á fegurstu stöðum
landsins vektu upp í huga vorum bjartari og fegurri endur-
minningar en áður um það, sem vér höfum sjálf séð fegurst
í lífinu. Það er áreiðanlegt, að ef vér rifjum upp af og til
gleðistundir lífs, vors geta þær orðið oss óþrjótandi uppspretta
unaðar. Ef vér höfum orðið hrifin af fögru landslagi, ®tti